Guðmundarlundur á bólakafi Freyja Þórisdóttir skrifar 10. apríl 2026 13:14 Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, segir gleðina við völd í Guðmundarlundi nú sem endra nær. Skógræktarfélag Kópavogs Útivistarsvæðið Guðmundarlundur í Kópavogi minnir frekar á stöðuvatn en útivistarsvæði eftir storma og tilheyrandi leysingar. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir vatnshæðina hafa náð tæplega metra þegar mest var. Allt horfi til betri vegar og skipulagðar fermingarveislur um helgina fari fram. Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, segir að ekki hafi skapast álíka ástand síðan árið 2019. Það þurfi þó enginn að hafa áhyggjur enda sé unnið alveg á fullu við það að létta á vatninu. „Við erum umvafin snillingum hérna og það eru allir tilbúnir að bjarga þessu með okkur,“ segir Kristinn í samtali við fréttastofu Vísis og bætir við að starfsmenn Kópavogs séu búnir að standa sig ótrúlega vel við að aðstoða félagið. Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, stillti sér upp í miðju vatninu. Skógræktarfélags Kópavogs Að sögn Kristins er ástandið tilkomið vegna vatns sem seytlar niður úr nærliggjandi hlíðum enda liggur Guðmundarlundur í dal. Hann lýsir því hvernig tvær stórar vinnuvélar séu nýttar í aðgerðunum og að þær grafi eins konar skurði sem hleypa þannig vatni úr lundinum. Fermingarveislur haldnar um helgina Kristinn segir að enginn þurfi að hafa áhyggjur af ástandinu og að þeir sem eigi salinn í lundinum bókaðan fyrir fermingarveislur um helgina geti andað rólega. „Það er unnið alveg á fullu að því að létta á vatninu enda eru fermingar í húsinu um helgina, þannig að við ætlum að klára þetta í dag. Það geta verið allt að 150 þúsund manns sem heimsækja svæðið á mánuði og því er þetta vatn ekki kærkomið,“ segir Kristinn. Hann segir að svæðinu hafi verið lokað í vikunni og að veginum upp í lundinn hafi verið lokað neðan við hesthúsin á svæðinu. Kristinn segir að vatnshæðin hafi náð allt að áttatíu sentímetrum á köflum. „Við settum keilu hérna við veginn en það var svo reyndar einhver vitleysingur sem tók sig til í morgun, færði hana og keyrði út í skurð,“ segir Kristinn en hann segir svo frá því að grafa sem var á svæðinu hafi verið nýtt til að draga bílinn upp á veg aftur. Veiðistöng og snorklgríma að heiman „En þó að allt hafi í raun farið alveg á kaf er ekkert að gera nema að slá á létta strengi. Þessi snorklgríma og veiðistöng komu að heiman en fiskurinn er svo bangsi sem ég fékk að láni frá barnabarninu mínu,“ segir Kristinn. Í færslum á Facebook-síðu félagsins hafa verið auglýst bæði grunnnámskeið í köfun í lundinum og opnun veiðsvæðis en Kristinn segir að um léttvægt grín sé að ræða. Færslurnar tvær sem Skógræktarfélag Kópavogs birti á Facebook-síðu sinni eru hér að neðan. Fyrri færslan hljóðar svo: Opnun veiðisvæðis í Guðmundarlundi hófst vel. Fyrsti fiskur vorsins var 3,5 punda hangur af tegundinni golfuggabassi (Salmo golfuggius) og var landaður í mini-golfholu. Það er allt morandi af fiski í Guðmundarlundi og allir eru velkomnir — veiðin er ókeypis. Eitt skilyrði er þó að gæta góðrar umgengni við vatnið. Mikilvægt er að skrá fjölda fiska, tegundir og þyngd afla; skráning og veiðiskýrslur skulu skilaðar að lokinni veiðiferð. En sú seinni svona: Grunnnámskeið í köfun var haldið í Guðmundarlundi í gær. Sérstakt próf þarf að standast til að mega kafa í Guðmundarvatni í Guðmundarlundi. Bóklegi hlutinn fór fram í salnum á Leiðarenda 3 þar sem farið var yfir helstu áhættuþætti, nauðsynlega þekkingu og viðbrögð ef fólk drukknaði. Nemendur fengu lánaðan allan búnað sem þarf fyrir námskeiðið. Sömu kröfur gilda um þurrbúningsréttindi til að fá að kafa í Guðmundarlundi og tíðkast víða þar sem kafað er í mjög köldu vatni. Á myndinni er kennari námskeiðsins að undirbúa köfun; allir 20 nemendur námskeiðsins eru hins vegar þegar undir yfirborði og sjást því ekki. Í dag verður framhaldsnámskeið í djúpköfun með vasaljósi ef nægjanleg þátttaka fæst. Kópavogur Veður Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira
Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, segir að ekki hafi skapast álíka ástand síðan árið 2019. Það þurfi þó enginn að hafa áhyggjur enda sé unnið alveg á fullu við það að létta á vatninu. „Við erum umvafin snillingum hérna og það eru allir tilbúnir að bjarga þessu með okkur,“ segir Kristinn í samtali við fréttastofu Vísis og bætir við að starfsmenn Kópavogs séu búnir að standa sig ótrúlega vel við að aðstoða félagið. Kristinn H. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Kópavogs, stillti sér upp í miðju vatninu. Skógræktarfélags Kópavogs Að sögn Kristins er ástandið tilkomið vegna vatns sem seytlar niður úr nærliggjandi hlíðum enda liggur Guðmundarlundur í dal. Hann lýsir því hvernig tvær stórar vinnuvélar séu nýttar í aðgerðunum og að þær grafi eins konar skurði sem hleypa þannig vatni úr lundinum. Fermingarveislur haldnar um helgina Kristinn segir að enginn þurfi að hafa áhyggjur af ástandinu og að þeir sem eigi salinn í lundinum bókaðan fyrir fermingarveislur um helgina geti andað rólega. „Það er unnið alveg á fullu að því að létta á vatninu enda eru fermingar í húsinu um helgina, þannig að við ætlum að klára þetta í dag. Það geta verið allt að 150 þúsund manns sem heimsækja svæðið á mánuði og því er þetta vatn ekki kærkomið,“ segir Kristinn. Hann segir að svæðinu hafi verið lokað í vikunni og að veginum upp í lundinn hafi verið lokað neðan við hesthúsin á svæðinu. Kristinn segir að vatnshæðin hafi náð allt að áttatíu sentímetrum á köflum. „Við settum keilu hérna við veginn en það var svo reyndar einhver vitleysingur sem tók sig til í morgun, færði hana og keyrði út í skurð,“ segir Kristinn en hann segir svo frá því að grafa sem var á svæðinu hafi verið nýtt til að draga bílinn upp á veg aftur. Veiðistöng og snorklgríma að heiman „En þó að allt hafi í raun farið alveg á kaf er ekkert að gera nema að slá á létta strengi. Þessi snorklgríma og veiðistöng komu að heiman en fiskurinn er svo bangsi sem ég fékk að láni frá barnabarninu mínu,“ segir Kristinn. Í færslum á Facebook-síðu félagsins hafa verið auglýst bæði grunnnámskeið í köfun í lundinum og opnun veiðsvæðis en Kristinn segir að um léttvægt grín sé að ræða. Færslurnar tvær sem Skógræktarfélag Kópavogs birti á Facebook-síðu sinni eru hér að neðan. Fyrri færslan hljóðar svo: Opnun veiðisvæðis í Guðmundarlundi hófst vel. Fyrsti fiskur vorsins var 3,5 punda hangur af tegundinni golfuggabassi (Salmo golfuggius) og var landaður í mini-golfholu. Það er allt morandi af fiski í Guðmundarlundi og allir eru velkomnir — veiðin er ókeypis. Eitt skilyrði er þó að gæta góðrar umgengni við vatnið. Mikilvægt er að skrá fjölda fiska, tegundir og þyngd afla; skráning og veiðiskýrslur skulu skilaðar að lokinni veiðiferð. En sú seinni svona: Grunnnámskeið í köfun var haldið í Guðmundarlundi í gær. Sérstakt próf þarf að standast til að mega kafa í Guðmundarvatni í Guðmundarlundi. Bóklegi hlutinn fór fram í salnum á Leiðarenda 3 þar sem farið var yfir helstu áhættuþætti, nauðsynlega þekkingu og viðbrögð ef fólk drukknaði. Nemendur fengu lánaðan allan búnað sem þarf fyrir námskeiðið. Sömu kröfur gilda um þurrbúningsréttindi til að fá að kafa í Guðmundarlundi og tíðkast víða þar sem kafað er í mjög köldu vatni. Á myndinni er kennari námskeiðsins að undirbúa köfun; allir 20 nemendur námskeiðsins eru hins vegar þegar undir yfirborði og sjást því ekki. Í dag verður framhaldsnámskeið í djúpköfun með vasaljósi ef nægjanleg þátttaka fæst.
Opnun veiðisvæðis í Guðmundarlundi hófst vel. Fyrsti fiskur vorsins var 3,5 punda hangur af tegundinni golfuggabassi (Salmo golfuggius) og var landaður í mini-golfholu. Það er allt morandi af fiski í Guðmundarlundi og allir eru velkomnir — veiðin er ókeypis. Eitt skilyrði er þó að gæta góðrar umgengni við vatnið. Mikilvægt er að skrá fjölda fiska, tegundir og þyngd afla; skráning og veiðiskýrslur skulu skilaðar að lokinni veiðiferð.
Grunnnámskeið í köfun var haldið í Guðmundarlundi í gær. Sérstakt próf þarf að standast til að mega kafa í Guðmundarvatni í Guðmundarlundi. Bóklegi hlutinn fór fram í salnum á Leiðarenda 3 þar sem farið var yfir helstu áhættuþætti, nauðsynlega þekkingu og viðbrögð ef fólk drukknaði. Nemendur fengu lánaðan allan búnað sem þarf fyrir námskeiðið. Sömu kröfur gilda um þurrbúningsréttindi til að fá að kafa í Guðmundarlundi og tíðkast víða þar sem kafað er í mjög köldu vatni. Á myndinni er kennari námskeiðsins að undirbúa köfun; allir 20 nemendur námskeiðsins eru hins vegar þegar undir yfirborði og sjást því ekki. Í dag verður framhaldsnámskeið í djúpköfun með vasaljósi ef nægjanleg þátttaka fæst.
Kópavogur Veður Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira