Allt í blóma utan vallar en þjálfarinn ekki ánægður með Endrick Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. apríl 2026 22:47 Erfitt er að gera öllum til geðs en Endrick vill eflaust hækka aðeins í áliti hjá þjálfaranum. Bruno Penas/Quality Sport Images/Getty Images Þó lífið utan vallar leiki við brasilíska ungstirnið Endrick er þjálfari hans hjá Lyon, Paulo Fonseca, ekki ánægður með frammistöðu hans innan vallar.
Lyon hefur ekki unnið í síðustu sex leikjum og dottið út úr bæði Evrópudeildinni og franska bikarnum. Endrick hefur hlotið gagnrýni fyrir sínar frammistöður á þessum kafla og nú hefur þjálfarinn bætti ofan á hana. „Ég var ekki ánægður með frammistöðu Endrick. Hann var þreyttur eftir ferðina til Brasilíu en hann ber ábyrgð á því að leggja sig meira fram. Við þurfum á honum að halda,“ sagði Portúgalinn við L‘Equipe. Fonseca hefur þó enn trú á Brasilíumanninum en er ekki ánægður með hann þessa stundina og sagði liðið í síðasta leik hafa þurft að treysta meira á Alfonso Moreria, leikmann sem kom úr portúgölsku þriðju deildinni, frekar en Endrick sem liðið fékk að láni Real Madrid. Endrick hefur þó staðið sig nokkuð vel frá því hann kom til Lyon í janúar, skorað fjögur mörk og lagt upp fjögur mörk í tólf leikjum. Hann hefur líka haft tilefni til að fagna í fjölskyldulífinu því í dag tilkynnti Endrick og kærasta hans Gabriely Miranda að þau ættu von á sínu fyrsta barni. View this post on Instagram Þau eru mikið stjörnupar í Brasilíu og hafa verið par síðan Endrick var sautján ára en hún er fjórum árum eldri. Þau giftust síðan daginn sem Endrick varð átján ára. Frægt varð þegar samningur sem þau hafa sín á milli í sambandinu varð opinber. Þar eru þau skyldug til að segja „ég elska þig“ við hvort annað á hverjum degi, eða borga sekt í formi gjafa.
Franski boltinn Real Madrid CF Spænski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Sjá meira