Enski boltinn

Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Þó þrjú mörk hafi verið skoruð var stærsta atvik leiksins rauða spjaldið sem Lizandro Martinez fékk.
Þó þrjú mörk hafi verið skoruð var stærsta atvik leiksins rauða spjaldið sem Lizandro Martinez fékk. EPA/ADAM VAUGHAN

Manchester United tapaði 1-2 gegn Leeds í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Manchester United gat náð tíu stiga forskoti á Chelsea í fimmta sætinu en tapaði þess í stað í fyrsta sinn á Old Trafford undir stjórn Michael Carrick.

Leeds komst tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik þökk sé Noah Okafor og gestirnir hefðu vel getað verið með stærra forskot eftir hræðilegan fyrri hálfleik hjá heimamönnum í United.

Staðan varð enn verri fyrir United þegar Lisandro Martinez fékk rautt spjald á 55. mínútu fyrir að toga í hár Dominic Calvert-Lewin hjá Leeds.

Liðsmenn Man. United vöknuðu eiginlega ekki í þessum leik fyrr en þeir voru orðnir tíu á móti ellefu og Casemiro minnkaði muninn með skalla eftir fyrirgjöf Bruno Fernandes á 69. mínútu.

Leeds náði ekki að bæta við marki þrátt fyrir mörg góð færi og þurfti síðan að verja sigurinn á móti tíu leikmönnum Manchester United síðustu tuttugu mínúturnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×