Handbolti

Snorri semur til 2032

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa stýrt íslenska landsliðinu undanfarin þrjú ár.
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason hafa stýrt íslenska landsliðinu undanfarin þrjú ár. vísir/vilhelm

Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur framlengt samning sinn við HSÍ til 2032, eða framyfir Ólympíuleikana í Brisbane. Arnór Atlason, aðstoðarmaður Snorra, semur einnig til 2032.

Snorri var ráðinn landsliðsþjálfari í byrjun júní 2023. Hann hefur stýrt íslenska landsliðinu á þremur stórmótum.

Á EM 2024 endaði Ísland í 10. sæti en því níunda á HM 2025. Á EM í janúar komust Íslendingar alla leið í undanúrslit og lentu í 4. sæti sem er besti árangur þeirra síðan 2010.

Næsta stórmót er HM í Þýskalandi 2027 en 2028 eru tvö stórmót; EM í Portúgal, Sviss og Svíþjóð og svo Ólympíuleikarnir í Los Angeles.

Á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Arion-banka í dag sagði Jón Halldórsson, formaður HSÍ, að markmið íslenska landsliðsins væri að vinna til verðlauna á stórmóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×