Ólympíumeistari óvænt hættur því líkaminn sagði stopp Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. apríl 2026 12:00 Axelsen er einn besti badminton spilari heims. Liu Nan/VCG via Getty Images Ríkjandi Ólympíumeistarinn í badminton, hinn danski Viktor Axelsen, hefur neyðst til að leggja spaðann á hilluna vegna þrálátra meiðsla.
Axelsen vann gullverðlaun á síðustu tveimur Ólympíuleikum og hefur einnig orðið heimsmeistari tvisvar. Hann tilkynnti um ákvörðunina í morgun með sorg í hjarta. „Ég er hættur í badminton. Eða öllu heldur hefur líkaminn sagt mér að hætta. Þetta er sorglegt en svona er staðan, því miður,“ sagði Axelsen við DR. Axelsen hefur ekkert getað æft eða keppt síðustu sex mánuði. „Ég hef verið að hugsa um að hætta í langan tíma. Þetta er skrítið, en ég er aðeins farinn að venjast hugmyndinni, þannig að það er fínt að taka ákvörðunina og koma þessu frá mér. Ég hef verið að berjast gegn því sem líkaminn segir mér að gera í langan tíma.“ View this post on Instagram Meiðslin eru af völdum taugaklemmu í hryggnum og hafa hrjáð Axelsen í rúmlega ár. Hann gekkst undir aðgerð fyrir um hálfu ári en hefur ekki losnað við sársaukann. Á eina mótinu sem hann keppti eftir aðgerðina þjáðist hann mikið. „Sem íþróttamaður venstu því að spila í gegnum sársauka, en sársaukinn sem orsakast af taugaklemmu er svo slæmur að þú getur ekki hundsað hann. Þetta er virkilega vont. Ég get ekki hreyft mig almennilega, hvað þá æft íþróttir. Þetta er sársauki sem er ekki hægt að hundsa, ég get það ekki allavega. Það sorglegasta er að ég er enn með metnaðinn til að spila og verða betra. Ég sakna þess að spila og elska íþróttina ennþá, þó ég hafi náð flestum mínum markmiðum. Það er erfitt að fara gegn því sem þú vilt gera en svona hefur þetta verið allt mitt líf,“ sagði Axelsen í viðtalinu við DR.
Tennis Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira