Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. apríl 2026 14:29 Hildur Jónsdóttir er formaður Félags sjúkrahúslækna. Samsett Stjórn Félags sjúkrahúslækna lýsir yfir þungum áhyggjum af uppsögnum sérfræðilækna á Landspítalanum í hagræðingarskyni. Ljóst sé að þörf er á læknum en framkoma líkt og í máli Ragnars Freys Ingvarssonar læknis laði ekki sérfræðinga að Landspítalanum.
Töluvert hefur verið fjallað um uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis sem sagt var upp störfum á Landspítalanum. Hann var í nokkurra mánaða launalausu leyfi en starfaði alla jafna í þrjátíu prósenta hlutfalli á sjúkrahúsinu. Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, sagði að Ragnari hefði verið boðin staða myndi hann starfa í hærra hlutfalli, eitthvað sem Ragnar kannaðist ekki við. Í bréfi Félags sjúkrahúsalækna (FSL) til Runólfs Pálssonar, forstjóra Landspítalans, Tómasar Þórs Ágústssonar, framkvæmdastjóra lækninga, og Gunnars Ágústs Beinteinssonar, framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs, lýsir stjórnin yfir þungum áhyggjum. „Ljóst er að skortur er á sérfræðilæknum víða á spítalanum og verður því að teljast undarlegt að verið sé að fækka í þeirra hópi. Það leiðir til aukins álags á þann hóp sem áfram er við störf, aukinnar yfirvinnu og þar með aukins kostnaðar,“ segir í bréfinu. „Það að leggja niður starf en auglýsa í sama starf í hærra hlutfalli þýðir að þörf er fyrir starfið. Læknum hefur verið sagt upp í sérgreinum þar sem fyrir liggur að mönnunarvandi er mikill og því er erfitt að skilja hvernig hægt er að réttlæta þessar aðgerðir.“ „Óboðlegt“ Stjórnin gerir einnig athugasemd við framkvæmd uppsagnarinnar þar sem hún er ekki í sambandi við leiðbeiningar sem fram komu í bréfi Læknafélags Íslands til Runólfs. „Það er óboðlegt að framkvæmdastjóri stærsta sviðs Landspítala fari fram með þessum hætti.“ Líkt og Ragnar Freyr lýsir því fékk hann símtal þar sem honum var sagt að staða hans hefði verið lögð niður. Þegar hann óskaði eftir nánari skýringum hafi hann fengið þau svör að Landspítali væri undir ríkri aðhaldskröfu frá stjórnvöldum. Nokkrum dögum síðar fékk hann formlegt uppsagnarbréf en hyggst láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar. FLS segir framkomuna ekki til þess fallna að laða lækna til starfa á Landspítala. Það er markmið stjórnvalda að laða íslenska lækna sem starfa erlendis aftur hingað til lands og skipaði Alma Möller heilbrigðisráðherra starfshóp sem hefur það markmið. „Mikið liggur við í mörgum greinum að fá til starfa öfluga sérfræðinga svo hægt sé að halda úti faglegri þjónustu á stærsta háskólasjúkrahúsi landsins,“ segir í bréfinu. Félagsmenn fái engar upplýsingar Þá hafi félagsmenn FSL sem starfa á sjúkrahúsinu ekki fengið neinar upplýsingar nema það sem komið hefur fram í fjölmiðlum. Óhjákvæmilega valdi það óvissu og óöryggi. „Spurningar vakna, eins og hvort standi til að leggja niður fleiri störf sérfræðilækna og hvaða forsendur liggja þá þar að baki.“ Stjórn FSL kallar því eftir því að yfirstjórn Landspítalans upplýsi lækna og aðra starfsmenn spítalans um „hvaða áhrif meintar hagræðingaraðgerðir muni hafa á störf á Landspítala“.
Landspítalinn Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira