Innlent

MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á ein­kunna­gjöf

Agnar Már Másson skrifar
Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra.
Inga Sæland er barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá.

Inga sagði á kennaraþingi í gær að nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi eða önnur form eins og tíðkast í dag. Þetta kom flatt upp á kennara og formaður Kennarasambandsins lýsti reiði vegna málsins í samtali við Vísi í gær.

Óskýrt er hvort Inga hafi með þessu verið að boða breytingar á sjálfu kerfinu en samkvæmt svörum frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur stofnunin engar slíkar breytingar á sínu borði.

Í svörum MMS við fyrirspurn Vísis segir að stofnuninni sé ekki kunnugt um nánari útfærslu á fyrirhuguðum breytingum umfram það sem fram kom í ræðu ráðherra, þ.e. að nefnt hafi verið að taka ætti út bókstafi í tengslum við mat/einkunnagjöf og setja tölustafi í staðinn.

Stofnuninni hafi enn fremur ekki verið falið að útfæra eða innleiða einhverjar breytingar á einkunnagjöf í grunnskólum.

Í svari MMS segir einnig að breytingar á einkunnakvarða þyrfti að útfæra í gegnum aðalnámskrá.

„Slíkar breytingar myndu kalla á endurskoðun á þeim köflum aðalnámskrár sem fjalla um námsmat og matskvarða, ásamt viðeigandi samræmingu innan greinasviða og í samhengi við heildarsýn og markmið aðalnámskrár,“ segir í svari MMS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×