Messi keypti spænskt fótboltafélag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 22:02 Lionel Messi á nú lítið fótboltafélag í Katalóníu á Spáni. Hann er enn að spila með Inter Miami í Bandaríkjunum. Getty/Leonardo Fernandez Argentínska fótboltastjarnan Lionel Messi er nýr eigandi fótboltafélagsins Cornella í fimmtu efstu deild á Spáni.
Cornella, sem er frá Katalóníu eins og Barcelona, tilkynnti um kaupin á vefsíðu sinni á fimmtudag. „Þessi aðgerð styrkir náin tengsl Messi við Barcelona og skuldbindingu hans við þróun íþrótta og staðbundinna hæfileika í Katalóníu,“ skrifar félagið á miðla sína. 🚨 BREAKING: Lionel Messi buys Spanish 3rd division club UE Cornellà. ✍🏼Catalunya based club will be owned by Leo Messi for its 100%. pic.twitter.com/urf1oCXgZe— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 16, 2026 Messi ólst upp sem fótboltamaður í akademíu Barcelona og varð goðsögn hjá félaginu áður en hann samdi við Paris Saint-Germain árið 2021. Messi er leikjahæsti og markahæsti leikmaður Barcelona í sögunni með 672 mörk í 778 leikjum í öllum keppnum. Næsti maður er með 232 mörk. Messi vann 35 titla með Barcelona frá 2004 til 2021. Árið 2023 gekk hann til liðs við Inter Miami, þar sem hann hefur síðan þá tekið þátt í að auka áhuga á fótbolta í Bandaríkjunum. Cornella spilar í fimmtu efstu deild í spænska fótboltakerfinu og berst á botni síns riðils. Félagið, sem er staðsett í Katalóníu, er vel þekkt fyrir leikmannaþróun og unglingaakademíu sína og hefur alið af sér stjörnur á borð við Jordi Alba og Gerard Martín, auk Arsenal-markvarðarins David Raya. „Koma Leo Messi markar upphaf nýs kafla í sögu félagsins, sem miðar að því að knýja fram vöxt bæði í íþróttum og stofnunum, styrkja grunn þess og halda áfram að fjárfesta í hæfileikum,“ sagði félagið í fréttatilkynningu. „Verkefnið er byggt á langtímasýn og stefnumótandi áætlun sem sameinar metnað, sjálfbærni og sterka tengingu við staðbundnar rætur.“ Alba var tvö ár í Cornellà-akademíunni áður en hann samdi við Barcelona árið 2012. Ilie Sánchez kom einnig upp í gegnum akademíuna áður en hann gekk til liðs við B-lið Barcelona og færði sig síðan yfir í MLS með ýmsum félögum, þar á meðal núverandi liði sínu, Austin FC. 🚨 ¡La noticia del siglo! Leo Messi, nuevo propietario de la #UECornellà 🙌Toda la info: https://t.co/2i0mepK83a pic.twitter.com/6wNKbstpR0— UE Cornellà 💚 (@ue_cornella) April 16, 2026
Spænski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira