„Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 19:51 Jóhannes Þór, sem er stjórnarmaður í Samtökunum 78, setur út á orðræðu Snorra um regnbogafána. Samsett Mynd Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. „
Það eina sem ég sé hér á fésbók frá Miðflokknum þessa dagana, rétt fyrir kosningar, er væl frambjóðenda og þingmanna yfir regnbogafánum í skólum, hvort sem er innan- eða utanhúss,“ skrifar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, í stuttri færslu á Facebook. Jóhannes hefur starfað sem stjórnarmaður í Samtökunum 78 en var áður aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þegar hann var forsætisráðherra Framsóknarflokksins en Sigmundur er í dag formaður Miðflokksins. „Er sumsé stefnan í þessum sveitarstjórnarkosningum að fleyta bara kerlingar á pópúlismaöldunni? Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum? Vegna þess að þannig lítur þetta út, gott fólk,“ bætir Jóhannes við. Væntanlega vísar Jóhannes þar til ummæla Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, sem birti í dag myndskeið á Facebook upp úr munnlegri fyrirspurn sinni á Alþingi frá deginum áður, þar sem hann spurði Ingu Sæland út í hinsegin fána í skólum. Rak þingmaðurinn sögu af því þegar þingmenn fóru í skólaheimsókn í Reykjavík í kjördæmaviku. Þar hefði það vakið athygli Snorra að nánast hver einasti starfsmaður skólans gengi um með hálsband í regnbogalitum. „[S]kólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum,“ skrifaði Snorri á Facebook sem sagði þetta vera hugmyndafræðilegar áherslur af hálfu skólans. Í ræðu sinni líkti hann flöggun fánans í dag við „hugmyndafræðilega kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni; að ekki sé gerð athugasemd við þetta sem er orðið að veraldlegu trúartákni.“ Snorri spurði Ingu hvort ekki væri betra að sleppa fánanum í skólabyggingum og hafa frekar íslenska fánann. „Við segjum nú í Miðflokknum: þetta er ekki flókið, burt með vókið,“ bætti hann svo við. Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar, bregst við þessum ummælum Snorra í stuttri færslu á Facebook og segir þar Snorra stilla samkynhneigð upp eins og hún sé hver önnur pólitísk skoðun. „Áfram heldur fánahræðslan. Og samkynhneigð er bara eins og hver önnur pólitísk skoðun. Svo þræta menn fyrir að það sé bakslag í réttindabaráttu,“ skrifar viðreisnarmaðurinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ummæli Snorra um hinsegin málefni vekja athygli en í haust sætti hann mikilli gagnrýni í kjölfar viðtals í Kastljósi þar sem hann rökræddi við Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra hjá Samtökum 78, um bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks. Vakti málið svo mikla athygli að sjálfur biskup fann sig knúinn til að tjá sig um það.
Hinsegin Miðflokkurinn Alþingi Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Málefni trans fólks Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira