Lofsungu Glódísi: „Stolt að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni“ Sindri Sverrisson skrifar 17. apríl 2026 14:15 Glódís Perla Viggósdóttir og Lucy Bronze mætast á Laugardalsvelli á morgun. Samsett/Getty Evrópumeistarar Englands vita allt sem þarf að vita um besta leikmann íslenska landsliðsins, fyrirliðann Glódísi Perlu Viggósdóttur, og hrósuðu henni í hástert fyrir stóru stundina á Laugardalsvelli á morgun.
Glódís bætir landsleikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur síðdegis á morgun þegar hún tekst á við Englendinga á Laugardalsvelli, í leik sem hefst klukkan 16:30. Þjálfarinn Sarina Wiegman og hin 34 ára gamla Lucy Bronze spöruðu ekki hrósið í garð Glódísar sem er einmitt liðsfélagi Georgiu Stanway, eins af lykilmönnum enska liðsins. „Þetta er stór stund fyrir fótboltann hér og fyrir hana sjálfa. Hún spilar auðvitað líka með Georgiu í Bayern München og við vitum að hún er stórkostlegur leiðtogi, einn besti leikmaður liðsins og afar mikilvæg fyrir þær. Þetta er stór stund fyrir hana, að spila hérna gegn okkur,“ sagði Wiegman sem fagnað hefur titli sem þjálfari á síðustu þremur Evrópumótum í röð. Bronze tók þá til máls en hún hefur einmitt spilað álíka marga leiki og Glódís sem er fjórum árum yngri. „Við höfum átt svipað langan landsliðsferil og ég ber mikla virðingu og aðdáun til hennar. Ég veit hversu erfitt þetta er, að spila svona marga leiki fyrir sína þjóð, og hún hefur verið lykilmaður hjá Íslandi lengur en ég hjá Englandi. Hún hefur átt lengri landsliðsferil og það segir margt um hvernig manneskja og leikmaður hún er. Georgia talar mjög fallega um hana, hversu mikill leiðtogi hún sé og hvernig manneskja hún er, og við erum stolt af að geta deilt þessari stund með einstökum leikmanni í kvennaboltanum,“ sagði Bronze.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira