Sport

Ís­land fékk sínu ekki fram­gengt: Rússar mega sigla undir hlut­lausum fána

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rússar fá keppnisleyfi á ný en aðeins undir hlutlausum merkjum.
Rússar fá keppnisleyfi á ný en aðeins undir hlutlausum merkjum. Mark Dadswell/Getty Images

Siglingafólki frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi verður aftur leyft að taka þátt í keppnum á vegum evrópska siglingasambandsins. Íslenska siglingasambandið og 13 önnur kusu gegn því að hleypa Rússum aftur inn.

Stjórnarformaður Siglingasambands Íslands er ekki viðstaddur ársþing evrópska siglingasambandsins sem fer fram um helgina.

Danmörk greiddi atkvæði fyrir hönd Íslands og kaus gegn tillögunni.

„Ég gaf Danmörku mitt leyfi til að nýta okkar atkvæði. Við erum sammála Norðurlöndunum í því að halda Rússum utan keppni í bili.

Við erum í samstarfi við Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin. Þar er þessu tekið afskaplega alvarlega, þetta er svo nálægt þeim, eins og hjá Finnlandi. Og við höfum hingað til tekið afstöðu með þeim,“ segir Anna Karen Jörgensdóttir, formaður SÍL, í samtali við Vísi.

Siglingasamband Evrópu leyfir Rússum ekki enn að keppa fyrir hönd Rússlands eins og hér. Heldur verður hlutlausum fána flaggað. Clive Mason/Getty Images

Tillagan var hins vegar samþykkt með 24 atkvæðum gegn 14. Sem þýðir að rússneskt og hvítrússneskt siglingafólk fær að keppa undir hlutlausum fána, eins og tíðkast hefur á síðustu Ólympíuleikum.

„Við getum lifað með niðurstöðunni en hún er ekki eins og best verður á kosið. Við hefðum viljað sjá skýrari afstöðu tekna með útilokun svo lengi sem stríðið í Úkraínu stendur yfir,“ segir Anders Kristensen, formaður danska siglingasambandsins, við DR.

Siglingasamband Evrópu er nýjast í röðinni til að hleypa Rússum aftur inn í sína keppni. Fyrr í vikunni var Rússum hleypt aftur inn í sundkeppnir, en þar voru engin takmörk sett.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×