Hið fullkomna (Evrópu)samband Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 20. apríl 2026 09:02 Við vitum öll að hið fullkomna samband er ekki til. Samt eyða sum okkar ómældum tíma í að leita að göllum hjá öðrum til að réttlæta eigin ótta við skuldbindingu eða nýjungar. Hvort sem um ræðir vináttu, ástarsamband eða stjórnmál, þá mótast ákvarðanir okkar oft af því hvort við þorum að horfa á heildarmyndina, eða hvort við kjósum að blása upp neikvæð smáatriði til að verja óbreytt ástand. Þegar kemur að umræðunni um Ísland og Evrópusambandið virðist eins og heilbrigð skynsemi hverfi eins og dögg fyrir sólu í leit að einhverjum ómögulegum hreinleika. Seinfeld-pólitíkin Umræðan minnir stundum óþægilega mikið á söguþráð í Seinfeld-þætti. Þar voru Jerry og vinir hans sérfræðingar í að slíta samböndum við frábært fólk af því einu að þau fundu alltaf eitthvað fáránlegt smáatriði til að hneykslast á: ein borðaði baunirnar sínar eina og eina í einu, önnur var með of stórar hendur og sú þriðja hló eins og hýena að þeirra mati. Þrátt fyrir fjölda kosta fundu þau alltaf þessa einu hárfínu ástæðu til að skella í lás og útiloka nánari sambönd. Íslensk ESB-umræða er á köflum á þessu sama plani. Sum hafna því jafnvel að ræða við okkar nánustu nágranna út af sögusögnum um að í Brussel sitji fólk við það eitt að mæla sveigjuna á gúrkum eða hanna flókna merkimiða á rafmagnstengi. Við fórnum öryggi, stöðugleika og lægra vöruverði fyrir sögusagnir um hýenuhlátur Brussel-valdsins, og endum ein í efnahagslegri einangrun á meðan lífið gengur sinn vanagang hjá sameinuðum nágrannaþjóðum. Eftirsjáin eftir fljótræðisskilnaðinn Stundum rýkur fólk út í fússi, skellir hurðum og telur sér trú um að algjört frelsi bíði handan við hornið. Bretar prófuðu þetta. Þeir fóru í „Brexit-skilnaðinn“ fullir af uppblásnu sjálfstrausti, en í dag ríkir mikil eftirsjá hjá meirihluta þjóðarinnar. Vandamálið var nefnilega það, að ákvörðunin var knúin áfram af allskyns lygum, útúrsnúningum og fáránlegum smáatriðum sem voru blásin upp til að valda upplýsingaóreiðu og búa til óvild. Þegar rykið settist kom í ljós að loforðin um gull og græna skóga utan ESB voru tómið eitt og dýrt reyndist að fórna samstarfinu fyrir sögusagnir sem reyndust innantómar. Í dag þráir meirihluti Breta að komast aftur að borðinu, enda uppgötvuðu þeir á dýrkeyptan hátt að það er mun kaldara að standa einn í storminum en að vera hluti af sterku sambandi. Þetta er dýrkeypt áminning um hvað getur gerst þegar við leyfum upphrópunum og ósannindum að eyðileggja mikilvæg samstarfsverkefni. Gestahúsið og fjarstýringin Andstæðingar viðræðna minna á vininn sem hringir reglulega til að kvarta yfir því að makinn þinn hafi þann ósið að skilja eftir skítuga sokka á gólfinu. Þeir benda á þessa einu sokka, þetta eina smáatriði, til að reyna að sannfæra þig um að sambandið sé ónýtt. En hér er mergur málsins: Við lifum þegar í sambúð með ESB, við erum bara ekki skráð í íbúaskrána. Við búum í gestahúsinu á lóðinni, borgum okkar hlut í rekstrinum og fylgjum húsreglunum í hvívetna, en við megum bara alls ekki snerta fjarstýringuna. Við erum passífir regluþegar sem innleiðum tilskipanir á færibandi án þess að fá svo mikið sem að sitja við eldhúsborðið þegar ákvarðanir eru teknar. Að standa úti á hlaði og láta aðra ákveða líf sitt kallast víst „sjálfstæði“ og „fullveldi“ í augum sumra. Höfðatölumeistarar Evrópu ESB er ekki útópía. Það er risavaxið samstarfsverkefni og auðvitað eru þar hlutir sem pirra okkur. Það eru reglur sem virka óþarfar og málamiðlanir sem bragðast eins og þurrt hrökkbrauð. En þannig er lífið; fullkomleikinn er vandfundinn og yfirleitt frekar dýr. Ef við þorum að mæta að samningaborðinu gætum við hins vegar upplifað eitthvað sem gæti kitlað íslenska egóið verulega: Við yrðum nefnilega hlutfallslega valdameiri en nánast allir aðrir í klúbbnum. Innan ESB fengjum við okkar eigin kommissar, okkar eigin dómara og neitunarvald í stærstu málunum til jafns við stórveldi eins og Þýskaland og Frakkland og þannig valdamest miðað við höfðatölu innan ESB. Við færum úr því að vera „hlýðnir þjónar“ sem bíða úti á hlaði, yfir í að verða húsráðendur með lyklavöld og raunveruleg áhrif. Ef það er eitthvað sem við Íslendingar elskum, þá er það að hafa hátt og láta mikið fyrir okkur fara á sviði þar sem ætti tæplega að heyrast í okkur. Spurningin er einföld: Viljum við frekar búa ein í kofanum okkar, þar sem við „ráðum öllu“ en erum varnarlaus fyrir efnahagslegum stormum, eða viljum við sitja við stærra borð þar sem skjólið er meira? Erum við tilbúin að fórna raunverulegum völdum fyrir þá tálsýn að það sé „sjálfstæði“ að standa ein og varnarlaus úti í hríðarstorminum? Niðurstaðan Við eigum að hætta að leita að hinu fullkomna sambandi, því það er ekki til. Það er kominn tími til að hætta að vera Jerry Seinfeld íslenskra stjórnmála og hætta að blása upp smáatriði til að fela óttann við að kynnast heiminum. Evrópusambandinu má líkja við mögulegan maka; það þarf að minnsta kosti að mæta á stefnumótið. Að neita að ræða málin og skoða samninginn er makalaus vitleysa og hornsteinn óupplýstrar ákvörðunartöku. Gott samband byggir ekki á útópískri fullkomnun, heldur á kjarkinum til að eiga samtal. Það þarf ekki mikinn kjark til að skoða samninginn, þorum að segja JÁ við því! Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Um þöggun Hörður Torfason Skoðun Skoðun Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun