Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Jakob Bjarnar skrifar 20. apríl 2026 10:31 Ásdís Kristjánsdóttir er ákafur talsmaður Kópavogsmódelsins svokallaða sem hefur heldur betur sett mark sitt á nálgun í leiksskólamálum. vísir/anton brink „Við höfum náð ótrúlegum árangri í leikskólum Kópavogs með tilkomu Kópavogsmódelsins,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. Kópavogsbúar kynna stoltir að í fyrsta skipti fá öll tólf mánaða börn leikskólapláss í Kópavogi.
Öllum börnum sem fædd eru í ágúst 2025 og eldri hefur verið boðið leikskólapláss í leikskólum Kópavogs í haust. Yngstu börn verða því tólf mánaða þegar aðlögun hefst í leikskólum Kópavogs að loknu sumarfríi og er þetta er í fyrsta sinn sem tólf mánaða börn fá leikskólapláss í Kópavogi. Ánægja með Kópavogsmódelið eykst ár frá ári Tekist hefur verið á um gagnsemi hins svokallaða Kópavogsmódels. Fyrirkomulagið er þannig að leikskólinn er gjaldfrjáls í sex tíma á dag en fyrir fleiri tíma en það í vistun greiða foreldrar hærra gjald en þekkist í öðrum sveitarfélögum. Stjórnendur innan bæjarins og leikskóla hafa lýst mikilli ánægju með kerfið í viðtölum en í rannsókninni kemur fram að meðal foreldra sé mikil óánægja með greiðslufyrirkomulag og fyrirkomulag skráningardaga og safnskóla. Þá lýsa foreldrar auknu álagi eftir innleiðingu módelsins og að þeir telji hvatann að breytingunum frekar hafa verið fjárhagslegan en að hann hafi verið drifinn af því að auka velferð barna og starfsfólks. Ásdís segir að þau í Kópavogi séu í fyrsta skipti að veita tólf mánaða börnum leikskólapláss sem er skýrasti vitnisburðurinn um árangur af Kópavogsmódelinu.vísir/anton brink Ásdís segir að þau hjá Kópavogi hafi gagnrýnt áðurnefnda rannsókn þar sem aðeins var rætt við 20 foreldra. Þau hafi verið með sínar eigin kannanir þar sem um 15 hundruð manns hafi svarað spurningum. „Þar kemur fram að ánægja með Kópavogsmódelið hefur verið að aukast ár frá ári auk þess sem foreldrar eru að upplifa, og það skiptir foreldra máli, að við séum að veita áreiðanlega þjónustu,“ segir Ásdís og vísar til þess að foreldrar þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að mannekla eða veikindi setji strik í reikninginn. Himinn og haf milli Kópavogs og Reykjavíkur „Þessu höfum við náð með Kópavogsmódelinu. Þar er gríðarlegur sveigjanleiki. Við höfum verið að hækka systkinaafsláttinn, við erum að bregðast við hnökrum og það hefur skilað tilætluðum árangri. Við erum með rúma afslætti, tekjutengingu, þannig að við erum að grípa tekjulág heimili. Þegar við fórum í að breyta módelinu vorum við sammála um að við yrðum að standa vörð um tekjulág heimili.“ Ásdís segir að mönnun hafi tekist einstaklega vel í leikskólum bæjarins.vísir/anton brink Ásdís segir það svo að þriðjungur foreldra í Kópavogi sem eru með leikskólabörn nýti sér gjaldfrjálsa leikskólavist. „Fyrstu sex klukkustundirnar eru gjaldfrjálsar. Heilt yfir hefur ánægja verið að aukast með þá þjónustu sem við höfum verið að veita í leikskólum Kópavogs,“ segir Ásdís. Og að himinn og haf sé milli þjónustunnar sem þau veiti í Kópavogi og svo í Reykjavík. Árangur Kópavogsmódelsins ótvíræður Tölurnar tala sínu máli. Ásdís telur árangurinn endurspegla jákvæð áhrif Kópavogsmódelsins á starfsumhverfi barna og starfsfólks í leikskólum Kópavogs. Mönnun í leikskólum bæjarins gengur vel og lokunardagar vegna mönnunarvanda heyra sögunni til. Þannig hefur aukinn stöðugleiki í starfseminni skilað betri þjónustu og gert Kópavogsbæ kleift að taka inn yngri börn en nokkru sinni fyrr. „Þessi árangur birtist meðal annars í því að leikskólar eru nánast fullmannaðir, þjónustan er stöðugri og áreiðanlegri og börn eru ekki send heim vegna manneklu. Þá erum við jafnframt stolt af því að tæplega 55 prósent starfsfólks í leikskólum Kópavogs er með háskólamenntun, sem er mjög hátt hlutfall á landsvísu. Við erum í fyrsta skipti að veita tólf mánaða börnum leikskólapláss sem er skýrasti vitnisburðurinn um árangur af Kópavogsmódelinu,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi.
Leikskólar Kópavogur Sveitarstjórnarmál Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Sjá meira