Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. apríl 2026 07:01 Kristinn fann vel fyrir hitanum enda gæddi hann sér á fimm eldsterkum vængjum í þættinum. Kristinn Jón Ólafsson oddviti Pírata í borgarstjórnarkosningum varð eitt sinn fyrir því óláni að drekka óvart áfengan drykk en Kristinn drekkur ekki áfengi. Óafvitandi keyrði bíl með drykkinn í hendi og skellti sér síðan í útihlaup sem fór ekkert sérstaklega vel.
Kristinn rifjaði þetta upp í nýjasta þætti skemmtiþáttarins Af vængjum fram, þangað sem frambjóðendur til borgarstjórnarkosninga mæta og gæða sér á eldsterkum kjúklingavængjum milli þess sem þeir svara krefjandi spurningum á léttari nótum. Þangað mætti hann ásamt Guðmundi Inga Þóroddssyni oddvita Flokks fólksins. Aldrei snert áfengi „Ég reyndar drekk ekki en ég hef samt verið með djammviskubit. Af því ég held að fólk átti sig ekki á því að þrátt fyrir að maður drekki ekki þá fer maður í ákveðinn gír og fer út í lífið og maður verður alveg þunnur eftir á. Ég var mikið í orkudrykkjum þegar ég var yngri...“ sagði Kristinn í þættinum. Hefurðu aldrei drukkið? „Ég hef aldrei drukkið. Eða jú reyndar, ég óvart fékk mér á nýsköpunarviðburði í Grósku, þá greip ég í svona drykk út undan mér, heyrðu já þetta er svona nýr sumardrykkur. Ég greip hann og þambaði hann og síðan fór ég upp í bíl og keyrði af stað heim og sagði við vin minn að ég þyrfti að leggja niður símann frá mér af því að lögreglan væri við hliðina á mér, tók drykkinn og fæ mér aftur sopa.“ Kristinn segist hafa mætt heim til sín og sett dósina á eldhúsborðið og farið út að hlaupa. Þá hafi allt kerfið farið í gang. „Það leiðir til þess að ég þarf að bruna í Grasagarðinn og gera ákveðna hluti til þar. Síðan kem ég heim eftir þetta og horfi á dósina...Bara?!?! Vodki?!? Fyrsti drykkurinn og sá eini á ævinni.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Píratar Flokkur fólksins Af vængjum fram Tengdar fréttir „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52 Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira
„Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins segir margar drottningar í flokknum aðspurður hvers vegna hann hafi ekki mætt í Silfrið í Ríkisútvarpinu á dögunum. Hann segist mæta í öll viðtöl sem þjóni markmiðum framboðsins, Heimir Már Pétursson kosningastjóri flokksins sé toppmaður þó hann geti við fyrstu sýn virst ógnvekjandi. 20. apríl 2026 15:52