Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Dapur­legt að fylgjast með hægri­flokkum sem sam­einast á jaðrinum

Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir dapurlegt að fylgjast með þróun hægriflokka á Alþingi sem séu að renna saman í einn jaðarflokk. Hún sagði að þrátt fyrir áskoranir í efnahagsmálum hefði ríkisstjórnin náð mikilvægum áföngum. Flokkurinn væri með skýr markmið í samstarfi ríkis og sveitarfélaga sem þau ætla að ráðast í, hljóti þau traust kjósenda.

Innlent
Fréttamynd

Úti­lokar oddvitaframboð í borginni

Heimir Már Pétursson útilokar að hann muni bjóða sig fram sem oddviti borgarstjórnarflokks Flokks fólksins. Sögusagnir þess efnis hafa borist á milli manna og náði sú saga kannski hæst í nýjasta hlaðvarpsþætti Komið gott sem kom út í vikunni.

Innlent
Fréttamynd

Ekki hættur í Sam­fylkingu þótt hann bjóði fram fyrir Fram­sókn

Formaður Samfylkingarinnar í Grindavík segist hvergi nærri hættur í flokknum þó að hann sé á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Erfitt hafi verið að fá fólk á lista fyrir Samfylkinguna og hann því ákveðið að taka slaginn með Framsókn.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa lista Sjálf­stæðis­manna í Múla­þingi

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Múlaþingi samþykkti í gær framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Berglind Harpa Svavarsdóttir mun áfram leiða listann, líkt og hún gerði fyrir kosningarnar 2022.

Innlent
Fréttamynd

Stefán Þór leiðir jafnaðar­menn í Fjarðabyggð

Stefán Þór Eysteinsson bæjarfulltrúi er oddviti lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Neskaupstað í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“

Rúnar Freyr Gíslason, leikari og verkefnastjóri hjá Rúv, situr í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ekki fer á milli mála hvað er efst á baugi hjá Rúnari þessa dagana: Ekkert gauf og ekkert hálfkák. Pólitíkin á hug hans allan þessa dagana.

Lífið
Fréttamynd

Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn

Brynju Dan Gunnarsdóttur hefur verið gert að víkja sem oddviti Framsóknar í Garðabæ. Hún segist hvorki munu taka sæti á lista flokksins í komandi kosningum né styðja flokkinn á nokkurn hátt. 

Innlent
Fréttamynd

Matthías leiðir Fram­sókn í Ár­borg

Matthías Bjarnason, tæknimaður og varabæjarfulltrúi, leiðir lista Framsóknar í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 2026.  Ellý Tómasdóttir, bæjarfulltrúi, verkefnastjóri og forvarnarfulltrúi, skipar annað sætið.

Innlent
Fréttamynd

Stofna fram­boð fyrir þá sem leggjast gegn sam­einingu

Framboðslistinn Framtíð Árneshrepps mun bjóða fram í hreppnum í komandi sveitarstjórnarkosningum en framboðið vill höfða til þeirra sem eru mótfallnir mögulegri sameiningu við Kaldrananeshrepp. Íbúar kjósa um sameininguna í mars en sveitarstjórnarkosningar eru í maí.

Innlent
Fréttamynd

Miðflokkur kynnir sex efstu í Garða­bæ

Efstu sex sæti Miðflokksins í Garðabæ hafa verið staðfest af stjórn kjördæmafélags Suðvesturkjördæmis. Lárus Guðmundsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, verður áfram oddviti flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Gísli Marteinn rís upp í krafti sýkla­lyfja

„Það styttist samt í upp­risu,“ segir Gísli Marteinn Baldurs­son sem, með hjálp sýkla­lyfja, er að hrista af sér flensu og lungna­bólgu sem hafa í sam­einingu haldið honum í tvær vikur fjarri góðu sjón­varps­gamni í spjallþættinum sem við hann er kenndur á Rúv.

Lífið
Fréttamynd

„Allt lýð­ræðið þurrkað út“

Djúpur ágreiningur hefur verið innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins allt kjörtímabilið og er hann meðal ástæðna þess að tveir borgarfulltrúar hafa sagt skilið við flokkinn. Þeir ætla að stofna nýjan óháðan borgarstjórnarflokk.

Innlent
Fréttamynd

Sakar minni­hluta um ó­dýra pólitík í að­draganda kosninga

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára.

Innlent
Fréttamynd

Brynja Dan í ó­vissu um oddvitasætið í Garða­bæ

Það stefnir í talsverða spennu hjá Framsóknarflokknum í Garðabæ á laugardag þegar uppstillingarnefnd kynnir lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Eins og staðan er í dag er vitað til þess að tveir hafi boðið sig fram sem oddvita flokksins, Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi flokksins í Garðabæ, og Hlynur Bæringsson varamaður hennar.

Innlent
Fréttamynd

Ó­ljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni gefur lítið fyrir þær skýringar Kjartans Magnússonar og Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa, sem kynntu að þau hefðu bæði gengið til liðs við Miðflokkinn, að ágreiningur hafi verið um borgarlínuna. Hildur segir það augljósan fyrirslátt sem dæmir sig sjálfur.

Innlent