Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Setja skýr skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn og gæti fengið þrjá menn, en þar fyrir neðan er hörð barátta um þriðja fulltrúann hjá Viðreisn og Miðflokki. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti Viðreisnar mælist með 46 prósent líkur á kjöri en Lárus Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins með 43 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Nína ekki eins mið­aldra

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Úti­loka ekki sam­starf en sjá djúpa gjá í mál­efnunum

Eini tveggja flokka meirihlutinn sem nú blasir við í Reykjavík er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hvorugt framboðið vill setja slíkt samstarf fremst á blað, en hvorugt lokar heldur dyrunum alveg. Svör oddvitanna sýna þó að bilið á milli flokkanna er talsvertog snýst ekki síst um leikskóla, samgöngur, húsnæði og sjálfa stefnu borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“

Í Grímsnes- og Grafningshreppi eiga tæplega 700 manns löghemili. Þar er einnig stærsta sumarbústaðabyggð landsins en á fjórða þúsund frístundahús eru skráð í sveitarfélaginu. Stærsta kosningamálið í hreppnum tengist einmitt frístundahúsum og þar eru ekki allir sammála.

Innlent
Fréttamynd

Þetta sé bæjar­stjórn Kópa­vogs til skammar

Kristrún Frostadóttir flutti ræðu á verkalýðskaffi sem Samfylkingarfélagið bauð til í Iðnó í dag. Þar sagði hún að bæjarstjórn Kópavogs væri til skammar fyrir að „hafa ekki úthlutað einni einustu lóð til Bjargs, sem byggir fyrir tekjulægra vinnandi fólk og tryggir fjölskyldum þess öruggt húsnæði“. Hún nefnir þá einnig undrun sína á mótspyrnu pólitískra andstæðinga í tenglsum við lögfestingu réttar til leikskólavistar.

Innlent
Fréttamynd

„Bjóða fram“ Biðlistann í Reykja­vík

Vegfarendur um Austurstræti hafa í morgun orðið varir við það sem virðist kosningamiðstöð framboðs að nafni Biðlistinn. Sú er þó ekki raunin þar sem um herferð á vegum Öryrkjabandalags Íslands er að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

Andar köldu milli Við­reisnar- og Miðflokksmanna

Sanna Magndalena Mörtudóttir hjá Vinstrinu er sá oddviti sem Reykvíkingar treysta best samkvæmt nýrri könnun. Sama könnun varpar einnig ljósi á það að kjósendum Miðflokksins og kjósendum Viðreisnar sé fremur illa við oddvita hvorum annarra, sem gæti reynst erfitt fyrir flokkana tvo ef þeir vilja að mynda saman meirihluta ásamt Sjálfstæðisflokknum.

Innlent
Fréttamynd

„Ég stöðvaði þessar sam­farir“

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segir eitt það vandræðalegasta sem hún hafi þurft að gera í vinnunni hafi verið að stöðva ástarleiki íbúa á Hrafnistu sem var að jafna sig á mjaðmaaðgerð.

Lífið
Fréttamynd

Rifjaði upp erfitt augna­blik frá 1994 til að skjóta á mót­herja

Regn­bogafánar og lausa­ganga flokks­gæðinga komu við sögu þegar odd­vitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum um­ræðum við kosninga­pall­borð frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Stór brjóst eru stór

Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti.

Lífið
Fréttamynd

„Hún er skrifuð af mér“

Gervigreindin hefur gert vart við sig í umræðunni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og oft erfitt að greina hvenær frambjóðendur nota mállíkön og hvenær ekki. Einn oddviti Sjálfstæðisflokksins þvertekur fyrir það á meðan annar sér ekki eftir staðreyndavillum úr smiðju gervigreindarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig

Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu, líkt og í síðustu könnun. Það sem vekur hins vegar athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næst stærst flokka. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík

Margt er líkt í stefnu flokkanna í leikskólamálum. Margir vilja tryggja systkinaforgang og heimgreiðslur og nær allir tala í sinni stefnu um að styrkja dagforeldrakerfið. Margir vilja auka svigrúm fyrirtækja og stofnana til að opna leikskóla. Nokkrir flokkar tala um hvernig á að auka mönnun og einhverjir tilgreina nákvæmlega hversu mörgum plássum á að fjölga á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Andar sig reyk­laus í gegnum kosninga­baráttuna

„Það eru komnir átta dagar og ég finn fyrir of­boðs­legu frelsi og er að springa úr monti,“ segir Birna Gunn­laugs­dóttir, menntunar­fræðingur og fram­bjóðandi Sósíalista, sem eftir tæp­lega hálfa öld hefði sjálf­sagt getað valið betri tíma til að hætta að reykja en ætlar að hug­leiða og anda sig í gegnum kosninga­baráttuna.

Lífið
Fréttamynd

Meiri­hluti odd­vita í glæ­nýju hlut­verki

Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast.

Innlent