Innlent

Jón Hrói nýr sveitar­stjóri í Langanesbyggð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Jón Hrói tekur við á þriðjudag.
Jón Hrói tekur við á þriðjudag. Langanesbyggð

Jón Hrói Finnsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Langanesbyggðar. Greint er frá ráðningu hans í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Þar kemur fram að sveitarstjórn hafi samþykkt ráðninguna á fundi í dag og hún taki gildi næsta þriðjudag, 1. September.

Í tilkynningu kemur jafnframt fram að Jón Hrói er stjórnsýslufræðingur og hefur áður starfað sem sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhrepps og Þingeyjarsveitar, sviðsstjóri velferðarsviðs Akraneskaupstaðar og Búsetusviðs Akureyrarbæjar, auk þess að starfa sem stjórnsýslu- og rekstrarráðgjafi, nú síðast hjá KPMG.

Starfið var fyrst auglýst í júní en enginn talinn hæfur af þeim sex sem sóttu um. Staðan var því auglýst að nýju. 


Tengdar fréttir

Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði

Sveitarstjórn Langanesbyggðar hefur ákveðið kanna hug íbúa til áforma um gerð vindmyllugarða í sveitarfélaginu og iðnaðarsvæðis við Finnafjörð í tengslum við gerð stórskipahafnar. Málið þykir heitt meðal íbúa en oddvitinn segir niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við framhald málsins.

Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum

Oddviti Langanesbyggðar, Sigurður Þór Guðmundsson, var síðasti maður sem komst inn í sveitarstjórn í kosningunum í gær. Kosningarnar í Langanesbyggð voru óbundnar en þá eru engir framboðslistar lagðir fram heldur geta kjósendur kosið hvaða kjörgenga íbúa sem er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×