Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Agnar Már Másson skrifar 20. apríl 2026 15:31 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er fyrrverandi utanríkisráðherra og einnig fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, hyggst segja sig frá þingstörfum þar sem hún hefur verið skipuð í embætti sendiherra til fimm ára. Hún hefur störf 1. ágúst. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að hún verði sendiherra í London í Bretlandi.
Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi ákveðið að skipa Þórdísi Kolbrúnu í embætti sendiherra til fimm ára á grundvelli laga um utanríkisþjónustu Íslands. Skipan Þórdísar í embætti er frá 1. ágúst. Þórdís, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi varaformaður flokksins, greinir einnig frá þessu á Facebook. Þar kveðst hún munu formlega tilkynna forseta Alþingis um að hún segi af sér þingmennsku en kveðst þegar hafa upplýst þingflokk Sjálfstæðisflokksins um málið. Samkvæmt heimildum Vísis stendur til að Þórdís verði sendiherra í bresku höfuðborginni London. Þórdís mun hafa beðið þingflokkinn um algjöran trúnað um þetta mál, en Ingveldur Anna Sigurðardóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, leysti einnig frá skjóðunni í ummælum undir færslu Þórdísar: „[H]lakka til að koma í heimsókn í London,“ skrifar Ingveldur en ummælunum hefur nú verið breytt. Þegar Vísir sló á þráðinn til fulltrúa utanríkisráðuneytisins vildi hann ekkert gefa upp um hvar Þórdís yrði skipuð þar sem enn væri beðið eftir staðfestingu frá stjórnvöldum í gistiríkinu. Þórdís hefur setið á þingi í um áratug en nú mun Árni Helgason væntanlega taka þingsæti Þórdísar þar sem hann er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. „Um nokkurt skeið hef ég í málflutningi mínum lagt áherslu á að komnir séu upp tímar í alþjóðamálum sem reyna munu öðruvísi og meira á Ísland en verið hefur undanfarna áratugi, jafnvel frá því við tókum öll mál okkar í eigin hendur árið 1944,“ skrifar Þórdís í yfirlýsingu á Facebook. Kveðst hún undanfarin misseri hafa hugleitt framtíðina og hvernig hún geti best gert gagn fyrir Ísland og íslenska hagsmuni. „Með hliðsjón af reynslu minni, þekkingu og tengslum á sviði alþjóðamála tel ég að ég geti, við núverandi aðstæður, gert mest gagn fyrir íslensku þjóðina með starfi á því sviði,“ skrifar hún. Ráðgefandi hæfninefnd mat Þórdísi Kolbrúnu mjög vel hæfa til að gegna stöðu sendiherra, samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins. Nefndina skipuðu Einar Gunnarsson sendiherra og fastafulltrúi, Anna Jóhannsdóttir sendiherra og fastafulltrúi og Birgir Hrafn Búason mannauðsstjóri. Þórdís Kolbrún hefur átt sæti á Alþingi frá árinu 2016 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017–2021 og um skeið einnig dómsmálaráðherra á árinu 2019. Hún var utanríkisráðherra 2021–2023 og aftur um rúmlega átta mánaða skeið árið 2024 en í millitíðinni, 2023–2024, gegndi hún embætti fjármála- og efnahagsráðherra. Þórdís Kolbrún var einnig varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2018–2025. Hún hefur frá því í febrúar 2025 verið sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um málefni barna í Úkraínu. Þórdís Kolbrún hefur ML-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún var lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011–2012 og framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013–2014, stundakennari í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík 2013–2015 og 2025 og aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014–2016. Þórdís skrifar á Facebook að sendiherrar gegni mikilvægu hlutverki fyrir Ísland og að hún muni nálgast verkefnið af auðmýkt en um leið sjálfstrausti. „Ég er þakklát vinum mínum og félögum mínum í Sjálfstæðisflokknum fyrir farsælt samstarf á margvíslegum vettvangi undanfarin tuttugu ár. Fyrir það traust og umboð sem ég hef hlotið á þeim vettvangi þakka ég af öllu hjarta.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sendiráð Íslands Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Utanríkismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira