Sjáðu Orra fá hundrað þúsund manns til að öskursyngja Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 07:02 Orri Steinn Óskarsson kveikti vel í fólki þegar hann fékk míkrafóninn í hendurnar. Skjáskot/Instagram Orri Steinn Óskarsson er orðinn að ákveðinni költhetju hjá stuðningsmönnum Real Sociedad sem elska að syngja um hann. Íslenski landsliðsfyrirliðinn stýrði miklum fjöldasöng í bikarmeistarafögnuðinum í San Sebastian.
Talið er að yfir 100.000 manns hafi mætt til þess að fagna Orra og hinum hetjunum úr liði Real Sociedad, heima í San Sebastian, á sigurhátíð eftir að þeir urðu bikarmeistarar á Spáni um helgina. Þar hóf Orri söng og fékk vægast sagt góðar undirtektir. View this post on Instagram A post shared by Real Sociedad de Fútbol (@realsociedad) Lagið sem Orri söng er frá Bad Bunny en stuðningsmenn Real Sociedad hafa breytt textanum sem er svona á spænsku: „Por la mañana café. Por la tarde ron. Llévame a Sevilla. Orri Óskarsson,“ eða á íslensku: „Kaffi á morgnana, romm á kvöldin, farðu með mig til Sevilla, Orri Óskarsson.“ Það var nefnilega í Sevilla sem bikarúrslitaleikurinn fór fram og þar höfðu Orri og félagar betur eftir vítaspyrnukeppni gegn Real Sociedad, þar sem spyrna Orra var að vísu varin, og enn njóta stuðningsmennirnir þess ákaft að syngja lagið. View this post on Instagram A post shared by EUSKADI QUÉDATE (@euskadiquedate_etb) Stuðningsmannasöngurinn hefur vakið heimsathygli og félagaskiptafréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano lýsti til dæmis söngnum sem þeim besta í fótboltanum þessa dagana. Orri hefur áður kyrjað hann með stuðningsmönnum en aldrei jafnmörgum og í fyrradag þegar sigurhátíðin var í San Sebastian. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom) Þetta er aðeins annar stóri titillinn sem Real Sociedad vinnur á þessari öld og hinn vannst við mun leiðinlegri aðstæður, þegar liðið varð bikarmeistari í miðjum kórónuveirufaraldri með enga áhorfendur á úrslitaleiknum. Orri komst með sigrinum um helgina í fámennan hóp Íslendinga sem unnið hafa bikarmeistaratitil í einhverju af bestu fótboltalöndum Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen var eini Íslendingurinn sem orðið hafði spænskur bikarmeistari og samkvæmt samantekt RÚV hafa aðeins þeir Ásgeir Sigurvinsson, Lárus Guðmundsson og Hermann Hreiðarsson einnig afrekað það að vinna bikarinn í einhverju af fimm bestu fótboltalöndunum í Evrópu; Spáni, Englandi, Þýskalandi, Ítalíu eða Frakklandi.
Spænski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Sjá meira