Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum Valur Páll Eiríksson skrifar 22. apríl 2026 14:30 Vuk Oskar Dimitrijevic Vísir/Guðmundur Vuk Oskar Dimitrijevic var á meðal betri leikmanna annarrar umferðar Bestu deildar karla. Hann skoraði tvö í 3-1 sigri Fram á Keflavík og hlaut mikið lof í Stúkunni á Sýn Sport.
Vuk er 25 ára gamall kantmaður og framherji sem stimplaði sig rækilega inn í lið Fram á síðasta ári eftir dræm ár hjá FH þar sem hann náði ekki að sýna sínar bestu hliðar. Vuk skoraði níu mörk í Bestu deildinni í fyrra og það þrátt fyrir að meiðsli hafi sett strik í reikninginn. Klippa: Vuk hrósað í hástert Hann byrjar tímabilið í ár af krafti og skoraði tvö mörk gegn Keflavík um síðustu helgi þar sem hann var sífellt ógnandi. „Hann er auðvitað frábær leikmaður, hann á auðvelt með að fara framhjá mönnum, svífur einhvern veginn framhjá þeim. Svo er hann markaskorari, þetta eru frábærar afgreiðslur,“ segir Halldór Árnason, fyrrverandi þjálfari Breiðabliks, í Stúkunni á Sýn Sport. „Svo spilar hann þannig stöðu – Fram spilar einhverja útgáfu af 5-3-2 – þar sem hann er einn af tveimur framherjum en lúrir mikið úti vinstra megin og svindlar aðeins. Þeir eiga auðvelt með að koma boltanum á hann og ansi erfitt að eiga við hann,“ „Þetta er virkilega, virkilega góður leikmaður,“ segir Halldór enn fremur. Líkt og fram kemur að ofan tókst Vuk ekki að standa undir háum væntingum sem gerðar voru til hans í FH milli 2021 og 2024 eftir að hafa sprottið fram á sjónarsviðið með glimrandi frammistöðu með uppeldisfélagi sínu Leikni. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, virðist hins vegar hafa hjálpað Vuk að sýna sínar bestu hliðar. Baldur Sigurðsson lék undir stjórn Rúnars á sínum tíma í KR og hrósar bæði Rúnari og Vuk. „Ég þekki Rúnar mjög vel og hann hefur marga kosti sem þjálfari, en einn hans helsti kostur er að leyfa leikmönnum að njóta sín og blómstra. Hann byggir upp sjálfstraust og hefur sannarlega gert það. Hann er fyrsti þjálfarinn sem nær því með Vuk, við höfum beðið eftir því og hann byrjar þetta tímabil vel,“ segir Baldur í þættinum. Umræðuna um Vuk má sjá í spilaranum.
Fram Besta deild karla Stúkan Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira