Tvíframlengt í spennutrylli í Eyjum Aron Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 20:44 Það hefur verið hart tekist á í undanúrslitaeinvígi Hauka og ÍBV Vísir/Ernir Eyjólfsson ÍBV er komið 2-1 yfir í undanúrslitaeinvígi sínu gegn Haukum í Olís deild kvenna í handbolta eftir sannkallaðan spennutrylli í Vestmannaeyjum í kvöld. Þriðji leikur liðanna var tvíframlengdur og lauk með eins marks sigri ÍBV, 38-37.
Einvígi liðanna til þessa hefur verið kyngimagnað og stóð það 1-1 eftir tvo mjög svo jafna leiki í undanúrslitaeinvíginu fram að leik kvöldsins. Sá olli heldur ekki vonbrigðum og var spennandi allt til loka venjulegs leiktíma þar sem mark frá Jóhönnu Margréti Sigurðardóttur fyrir Hauka kom hafnfirska liðinu einu marki yfir í stöðuna 28-29. Marki hennar var hins vegar snögglega svarað af Kristrúnu Ósk Hlynsdóttur fyrir ÍBV á lokaandartökum leiksins, 29-29. Því þurfti að grípa til framlengingar. Áfram héldu liðin að refsa hvort öðru á víxl. Þegar að Haukakonur virtust vera að fara ná upp smá forskoti komu Eyjakonur sterkar til baka. Birna Berg Haraldsdóttir fékk tækifæri til þess að tryggja ÍBV dramatískan sigur á lokaandartökum framlengingarinnar eftir að gestirnir höfðu tapað boltanum en skot hennar fór yfir markið. Staðan 34-34 og því þurfti að fara í aðra framlengingu. Leikurinn frábær auglýsing fyrir íslenskan handbolta en það voru heimakonur í liði ÍBV sem reyndust hlutskarpari á lokamínútum seinni framlengingarinnar. Þar var það Ásdís Halla Hjarðar sem skoraði sigurmarkið þegar rétt rúm mínúta eftir lifði leiks. Lokatölur urðu 38-37 ÍBV í vil. Eyjakonur eru komnar 2-1 yfir í einvíginu og geta með sigri á Ásvöllum á Laugardaginn kemur tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi deildarinnar. Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV í kvöld með fjórtán mörk. Hjá Haukum var það Embla Steindórsdóttir sem var markahæst með þrettán mörk.
Olís-deild kvenna Haukar ÍBV Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Sigurganga Hauka heldur áfram Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Sjá meira