„Við þurfum að vinna leik á mánudaginn“ Kári Mímisson skrifar 23. apríl 2026 21:41 Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur Anton Brink/Vísir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var að vonum svekktur með tap síns liðs gegn Grindavík nú í kvöld. „
Þetta eru auðvitað vonbrigði. Fyrri hálfleikurinn var afleitur og við setjum okkur í kjölfarið í erfiða stöðu. Við byrjum seinni hálfleikinn af fítonskrafti og náum þessu niður í tvö stig. Á einhverjum tímapunkti finna þær lausnir og við vorum að lenda í vandræðum með Abby sem var að skora mikið á okkur. Þetta eru vonbrigði en ég er að reyna að halda í mér. Ég er búinn að vera í meistaraflokki í körfubolta í 29 ár og hef ekki verið að koma í viðtöl og talað um dómgæslu, þú getur grafið það upp. Ég er gáttaður á ósamræminu í kvöld og þeir toppuðu sig svo þegar þeir tóku sóknarvillu á Pau. Maður á ekki að vera að tjá sig um þetta svona strax eftir leik og ég á eftir að horfa á þetta aftur en tilfinningin hjá okkur Óla á hliðarlínunni var að það væri ofboðslegt ósamræmi í dómgæslunni.“ Myndir þú þá segja að dómararnir hafi ráðið úrslitunum hér í kvöld? „Nei, alls ekki en það eru augnablik þar sem dómgæslan gerir okkur erfitt. Við áttum ekki nógu góðan dag og það segir sig sjálf að maður tapar ekki leik með 19 stigum út af dómurunum. Það voru augnablik svo voru okkur þung í dag og ég er hundóánægður með ósamræmið í dag. Við höfum ekki verið að tala um dómgæslu í vetur en okkur þótti þessi leikur vera versta frammistaða sem að við höfum séð í vetur, en okkar var reyndar ekkert mikið betri.“ Fyrri hálfleikur var afar dapur hjá Njarðvík en liðið átti í miklum erfiðleikum með að koma boltanum í körfuna. Einar segir að þrátt fyrir þennan slæma fyrri hálfleik hafi liðið brugðist vel við í þeim seinni. Liðið þurfi að leika betur en þetta í 40 mínútur á mánudaginn. „Svona er jú körfuboltinn stundum. Við skoruðum fyrstu tvær körfurnar og okkur leið ágætlega komandi inn í leikinn. Við þurfum svo að hrósa þeim líka, þær voru að gera vel varnarlega en hið augljósa er líka að við vorum ekki að hitta og vorum með einn af þrettán í þriggja stiga skotum í fyrri hálfleik. Það er erfitt og það er ekkert eins og að stelpurnar hafi verið að taka léleg skot. Við vorum að fá góð þriggja stiga skot sem við vorum að setja í upphituninni. Mér fannst þær samt bregðast vel við í seinni hálfleik og við getum tekið fullt af góðum hlutum þaðan. Þetta er svipað og í síðasta leik, slakur fyrri hálfleikur og góðir sprettir í þeim seinni. Okkur vantar miklu betri heildarframmistöðu. Skilaboðin inn í klefann núna eru einföld, við þurfum að vinna leik á mánudaginn.“
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík UMF Grindavík Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira