Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar 25. apríl 2026 07:47 Á undanförnum árum hefur safnast upp veruleg viðhaldsþörf í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar, bæði hvað varðar húsnæði og skólalóðir. Vandamálið er ekki nýtt heldur afleiðing þess að viðhald hefur lengi ekki verið í forgangi. Staðan er einfaldlega þannig að sumar lóðir og húsnæði er einfaldlega ekki öruggt fyrir börnin. Í barnvænu samfélagi eins og Hafnarfirði ætti slíkt ekki að gerast. Innviðir hafa ekki vaxið Á síðustu fjórum árum hefur Viðreisn náð ýmsum mikilvægum bótum í gegn í Hafnarfirði, meðal annars að fjármagn til viðhalds leik- og grunnskóla húsnæðis og lóða sé stóraukið, ásamt því að gerð verði framkvæmdaáætlun til næstu ára. Þrátt fyrir það er ljóst að uppsöfnuð þörf og margra ára svelt í fjármagni til viðhalds að enn vantar verulega upp á þegar kemur að reglulegu og markvissu viðhaldi leik- og grunnskóla. Raunveruleikinn er sá að hér er ekki aðeins um fjárhagslegt vandamál að ræða, heldur einnig skort á skilningi á mikilvægi málaflokksins. Þrátt fyrir að íbúum Hafnarfjarðarbæjar hafi fjölgað úr um 25 þúsund árið 2008 í yfir 30 þúsund í dag, og að leik- og grunnskólum hafi á sama tíma fjölgað, hefur umfang verkefna vaxið án þess að mannafli eða innviðir hafi fylgt þeirri þróun Viðhald er forvörn Víða snýst viðhald enn fyrst og fremst um að slökkva elda, bregðast við brýnum þörfum fremur en að tryggja reglulegt og fyrirbyggjandi viðhald sem kemur í veg fyrir að vandinn endurtaki sig. Gott viðhald er ekki aðeins kostnaður heldur forvörn. Það snýst um öryggi barna, heilnæmt starfsumhverfi kennara og annarra starfsmanna og virðingu fyrir sameiginlegum eignum bæjarbúa. Ástand sumra skólalóða hefur á síðustu árum verið með þeim hætti að það hefur valdið réttmætum áhyggjum, og því er sérstaklega mikilvægt að tryggja stöðuga og nægilega fjármögnun á því sviði. Viðreisn gengur í verkin Skólar eiga ekki að vera afgangsstærð í fjárhagsáætlun bæjarins. Þegar rætt er um forgangsröðun fjármagns kemur oft fram að fjármunir séu eyrnamerktir öðrum verkefnum til lengri tíma. En það breytir ekki þeirri staðreynd að viðhald skólahúsnæði og lóða bæjarins hefur setið eftir. Dæmi eru um að fjármagni sem ætlað var í nauðsynlegt viðhald skólahúsnæðis hafi verið ráðstafað annað, á meðan skólarnir bíða áfram. Við munum halda áfram að leggja ríka áherslu á að í komandi kjörtímabili verði tryggð raunveruleg innspýting í viðhald leik- og grunnskólahúsnæðis og skólalóða í Hafnarfirði. Það er fjárfesting í börnum, framtíð bæjarins og hún borgar sig. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karólína Helga Símonardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar