„Þá held ég að við förum helvíti langt með þetta“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2026 17:28 Sara Sif var mikilvæg fyrir Hauka í dag með 22 skot varin eða 49% markvörslu. Vísir/Anton Brink Haukar tryggðu sér oddaleik í Vestmannaeyjum með sigri á ÍBV í dag. Sara Sif Helgadóttir markvörður Hauka átti stórleik í markinu með 49% vörslu. „
Svo sætt, svo ánægð. Þvílíkt sátt með hópinn og þetta eru búnir að vera geggjaðir leikir,“ sagði Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, eftir að liðið tryggði sér oddaleik í Eyjum. „Stórt hrós á ÍBV að spila geggjaðan handbolta og þetta er búið að vera alveg hnekk í hnekk allan tímann. Þannig að já, bara svo sætt og svo ánægð að hafa tryggt þennan oddaleik.“ Síðustu fjórir leikir hafa verið ansi jafnir og er staðan í einvíginu 2-2. „Í öllum leikjunum er þetta bara stál í stál og svolítið bara svona, hver ætlar að klára þetta og í dag náum við að klára þetta. ÍBV hefur náð að klára þetta í síðustu tveimur leikjum.“ Hvað þurfið þið að gera í oddaleiknum til að tryggja ykkur sæti í úrslitunum? „Við verðum að halda þessari vörn áfram og þessari baráttu. Ef við fáum leikgleðina með okkur þá kemur sóknin inn og við verðum að fá þessi auðveldu mörk inn. Þannig að ef við náum því og við náum að keyra heim og stoppa þær strax og ekki fá þessi fyrstu tempómörk á okkur sem við höfum verið að fá í síðustu tveimur leikjum. Þá held ég að við förum helvíti langt með þetta en síðan er náttúrulega bara ÍBV alveg þrususterkt lið. Þetta verður bara ógeðslega skemmtilegur handboltaleikur.“
Haukar Olís-deild kvenna Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Ísland og Danmörk mætast í hnefaleikahringnum í kvöld Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Dagskráin: Stærsta boxmót ársins á Íslandi Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Jesús áfram í Stjörnunni Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Sjá meira