Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Aron Guðmundsson skrifar 25. apríl 2026 22:45 Það sauð upp úr milli Baldurs og Arnars eftir leik Vísir/Samsett Það var mikill hiti eftir leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls í kvöld sem lauk með sigri Stjörnunnar í framlengdum leik. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls var brjálaður eftir leik. Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar bað hann afsökunar í viðtali við Sýn Sport.
Það var Hilmar Smári Henningsson sem tryggði Stjörnunni sigur með flautukörfu í framlengingunni og kom með því Stjörnunni 2-0 yfir í einvíginu. Garðbæingar geta klárað einvígið í Síkinu í næsta leik. Upp úr sauð milli þjálfaranna eftir leik og var Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls verulega ósáttur með að karfa Hilmars Smára skildi fá að standa. Vildi hann meina að Hilmar hafi skrefað í aðdragandanum. Klippa: Upp úr sauð eftir leik Stjörnunnar og Tindastóls „Algjörlega mitt klúður“ Arnar og Baldur Þór, þjálfari Stjörnunnar, áttu í orðaskiptum og ýtingum fljótlega eftir leik og hefur Baldur beðið Arnar afsökunar á því hvernig hlutirnir þróuðust þeirra á milli. Klippa: Bað Arnar afsökunar eftir leik „Þetta voru mistök hjá mér,“ sagði Baldur í viðtali við Andra Má Eggertsson á Sýn eftir leik. „Mér fannst hann einhvern veginn ekki þakka fyrir leikinn. Hann er í erfiðum aðstæðum þarna. Er að skoða skjáinn. Það er siður að þjálfarar takist í hendur eftir leik. En þetta var klúður hjá mér. Ég átti að gefa honum meira rými. Bara klúður hjá mér. Við töluðum um þetta. Bara klúður hjá mér. Algjörlega mitt klúður. Ég bað hann afsökunar á vellinum og bið hann aftur afsökunar núna. Ég hefði átt að gera þetta betur.“ „Skref“ Arnar fór einnig yfir málin með Andra Má í viðtali eftir leik og virðist sem svo að hann og Baldur hafi náð að ræða málin aðeins sín á milli. Arnar er ósáttur með sigurkörfu Hilmars Smára, telur að um skref sé að ræða. „Skref. Þetta er eins og íþróttir eru. Við erum búnir að vera óheppnir á stórum stundum í vetur með dóma,“ sagði Arnar í viðtali við Andra Má eftir leik. „Hilmar skrefar í þessu skoti á stepbackinu.“ „Ég er ekki að saka neinn um eitt eða neitt. Þeir (dómararnir) eru ekki í auðveldri stöðu. Ég efast ekki um að þeir séu að gera allt eins vel og þeir geta. Þetta hefur bara lent svona. Það er svekkjandi að þetta hafi gerst.“
Bónus-deild karla Stjarnan Tindastóll Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira