Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. apríl 2026 21:55 Ólafur Ragnar Grímsson á Hringborði norðurslóða í fyrra. Vísir/Anton Brink Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að vísbendingar um mögulegt hrun veltihringrásarinnar í Atlantshafi eigi að vera efst á áhyggjulistanum.
Fjallað hefur verið um mögulegt veiklun og mögulegt rof veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) vegna loftslagsbreytinga undanfarin ár en Golfstraumurinn við Íslandsstrendur er einn angi hennar. Veltihringrásin flytur hlýjan sjó sunnan úr höfum hingað norður og gerir það að verkum að loftslagið á Íslandi er eins milt og raun ber vitni. The growing alarming scientific evidence which should be at the core of #Iceland’s concerns. Why is our media and leaders almost silent? Could become a monumental disaster within a few decades. Also for the #UK and #NorthernEurope. https://t.co/nj9jNVP87i— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) April 26, 2026 Í færslu sem Ólafur Ragnar deilir svarar hann færslu veðurfræðings sem vísar svo í grein Guardian sem birtist fyrr í mánuðinum. Þar er fjallað um niðurstöður nýrra rannsókna sem benda til þess að gera þurfi ráð fyrir því að mögulegt hrun veltihringrásarinnar sé mun líklegra en gengið hefur verið út frá. Í greininni kemur fram að hringrásin standi veikt og að á henni gæti hægst þannig að það leiði til hruns. Það hefði mikil áhrif á veðurfar um allan heim en gæti gert Ísland nær óbyggilegt. „Þessi vaxandi og uggvænlegu vísindalegu teikn ættu að vera eitt helsta áhyggjuefni Íslands. Hvers vegna eru fjölmiðlar okkar og leiðtogar nánast þöglir?“ spyr Ólafur Ragnar sig. Hann varar við því að stefnt gæti í gífurlegar hamfarir innan fárra áratuga. Allt að níu gráðum kaldara að vetri Helstu loftslagsvísindamenn Íslands voru í hópi tugi vísindamanna vöruðu norræna ráðherra við hættunni fyrir Norðurlöndin ef veltihringrásin stöðvast í opinu bréfi á Hringborði norðurslóða árið 2024. Þekkt er úr jarðsögunni að snöggar breytingar geti orðið á hafstraumum. Vöruðu vísindamenn við því að sú hætta hafi fram að þessu verið vanmetin í loftslagslíkönum og vísindaskýrslum. Vísbendingar væru um að veltihringrásin veiktist en óvíst væri hvort og þá hvenær hún gæti stöðvast alveg. Talað hefur verið um að norðurhvel jarðar gæti kólnað um eina til tvær gráður ef veltihringrásin stöðvaðist. Staðbundnu áhrifin yrðu þó mun meiri og ólík frá einum stað til annars. Við strendur Noregs gæti þannig orðið allt að tuttugu gráðum kaldara en nú er og á Íslandi gæti vetrarhiti orðið allt að níu gráðum lægri. Meðalvetrarhiti á Íslandi er í kringum frostmark og hefur farið hækkandi. Hrynji veltihringrásin gæti hann þá verið í kringum níu gráðu frost. Til samanburðar er meðalhiti í Rovaniemi, höfuðstað Lapplands í Finnlandi, á norðurheimskautsbaugnum á milli tíu og ellefu gráðu frost í janúar samkvæmt tölum finnsku veðurstofunnar.
Loftslagsmál Hafið Vísindi Ólafur Ragnar Grímsson Tengdar fréttir Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert Breytingar í veltihringrás Atlantshafsins af sökum loftslagsbreytinga gætu valdið því að hringrás Golfstraumsins rofni og verulega kólni á Íslandi. Fagstjóri loftslagsmála hjá Veðurstofu Íslands segir Ísland standa frammi fyrir hamfarakólnun. 31. ágúst 2025 11:32 Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35 Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis. 19. október 2024 16:16 Færiband hlýrra hafstrauma í Atlantshafi ekki verið hægara í þúsund ár Veikist hringrás sjávar enn frekar eða stöðvist hefði það mikil staðbundin áhrif á veðurfar og dýralíf. 12. apríl 2018 13:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Ísland standi frammi fyrir hamfarakólnun verði ekkert gert Breytingar í veltihringrás Atlantshafsins af sökum loftslagsbreytinga gætu valdið því að hringrás Golfstraumsins rofni og verulega kólni á Íslandi. Fagstjóri loftslagsmála hjá Veðurstofu Íslands segir Ísland standa frammi fyrir hamfarakólnun. 31. ágúst 2025 11:32
Ekki lengur fjarlægur möguleiki að hringrás í Atlantshafi stöðvist Hættan á því að lykilhringrás í Norður-Atlantshafi gæti stöðvast vegna loftslagsbreytingar hefur verið verulega vanmetin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Allt að fjórðungslíkur gætu verið á hruni hringrásarinnar jafnvel þótt menn drægju verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 29. ágúst 2025 09:35
Vara ráðherra við hörmungum ef lykilhringrás í hafinu stöðvast Sumir fremstu loftslagsvísindamanna heims eru á meðal þeirra sem vara norræna ráðherra við alvarlegri ógn við mikilvæga hringrás í Norður-Atlantshafi sem gæti haft hörmungar í för með sér fyrir Norðurlöndin. Fjórir íslenskir fræðimenn eru á meðal þeirra sem skrifa undir opið bréf þess efnis. 19. október 2024 16:16
Færiband hlýrra hafstrauma í Atlantshafi ekki verið hægara í þúsund ár Veikist hringrás sjávar enn frekar eða stöðvist hefði það mikil staðbundin áhrif á veðurfar og dýralíf. 12. apríl 2018 13:00