Innlent

Bein út­sending: Krist­rún á opnum fundi nefndar um þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra situr fyrir svörum hjá utanríkismálanefnd í dag.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra situr fyrir svörum hjá utanríkismálanefnd í dag. Vísir/Lýður Valberg

Utanríkismálanefnd Alþingis heldur klukkan 9.30 opinn fund um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur fundarins.

Fundurinn hefst kl. 9:30 í Smiðju, Tjarnargötu 9. Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi á meðan húsrúm leyfir. Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis. Fundinum verður einnig streymt hér á vef Vísis. Spilarinn kemur inn í fréttina þegar nær dregur.

Nefndin fundaði síðasta föstudag á opnum fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Stjórnarandstaðan sagði fundinn vonbrigði en ráðherra sagði hörkuna í umræðunni koma á óvart.

Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram þann 29. ágúst.


Tengdar fréttir

Full­yrðingar um ETS-kerfi og strand­siglingar standast ekki

Innanlandsflug hefur fallið undir evrópskt kerfi með losunarheimildir frá upphafi þvert á það sem starfshópur innviðaráðuneytis um strandsiglingar fullyrti. Ekki er heldur nein heimild til þess að fella niður skuldbindingar vegna kerfisins á strandsiglingar eins og ráðherra hefur boðað.

Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum

Costas Kadis sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir sambandið opið fyrir því að veita Íslandi undanþágur í sjávarútvegsmálum í aðildarviðræðum. Það sé „klárlega svigrúm“ í málaflokknum.

„Aðild að Evrópu­sam­bandinu myndi skapa stöðug­leika“

Sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins segir mörg dæmi um að tillit sé tekið til sérstöðu umsóknarríkja í aðildarviðræðum. ESB geti fært Íslandi stöðugleika á víðsjárverðum tímum í alþjóðamálum og sérþekking Íslands komi til með að nýtast sambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×