Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar 27. apríl 2026 09:03 Golf er í dag ein vinsælasta útivistar- og íþróttagreinin á Íslandi og hefur áhugi á íþróttinni vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. Í Hafnarfirði er þessi þróun sérstaklega áberandi, þar sem kylfingum hefur fjölgað stöðugt og biðlistar eftir að komast að eru langir. Þörfin fyrir fleiri golfholur á höfuðborgarsvæðinu er því orðin brýn og ljóst að sveitarfélög þurfa að bregðast við. Hafnarfjörður hefur ákveðið að axla sína ábyrgð í þeirri uppbyggingu. Í því skyni var skipaður starfshópur sem vann ítarlega greiningu á möguleikum fyrir nýjan golfvöll í bæjarlandinu. Hópurinn skilaði af sér skýrslu síðastliðið sumar og hefur síðan verið unnið markvisst eftir niðurstöðum hennar. Í þeirri vinnu er gert ráð fyrir að í nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðar verði tekið frá stórt og vel afmarkað svæði undir framtíðargolfvöll. Svæðið sem um ræðir er einstakt, en það liggur sunnan og vestan Stórhöfða, austan við Krýsuvíkurveg og norðan við Bláfjallaveg. Þar mætast hrjúf hraun og víðáttumikil náttúra sem ber með sér sterkan íslenskan svip. Þetta er landsvæði sem kallar á vandaða nálgun þar sem jafnvægi milli uppbyggingar og náttúruverndar er haft að leiðarljósi. Markmiðið er að þróa golfvöll sem fellur að landslaginu, nýtir náttúrulega eiginleika þess og verndar sérstöðu svæðisins til framtíðar. Horft er til þess að á svæðinu geti risið allt að 48 holu golfvöllur þegar uppbyggingu verður að fullu lokið. Slík aðstaða myndi setja Hafnarfjörð í fremstu röð hvað varðar golfaðstöðu á landinu og skapa ný tækifæri fyrir íþróttina í heild. Samhliða verður lögð áhersla á að byggja upp hágæða æfingasvæði og alla nauðsynlega þjónustu, þannig að aðstaðan nýtist jafnt byrjendum, áhugafólki og afrekskylfingum. Samhliða þarf að styrkja núverandi aðstöðu Á sama tíma og horft er til framtíðaruppbyggingar er mikilvægt að gleyma ekki því sem þegar er til staðar. Núverandi golfvöllur Keilis gegnir lykilhlutverki í íþróttalífi bæjarins en aðstaðan er komin að þolmörkum. Mikilvægt er að ráðast í markvissar endurbætur sem miða að því að: Styrkja æfingaaðstöðu Bæta aðstöðu fyrir börn og ungmenni sem æfa golf Efla umgjörð og þjónustu fyrir félagsmenn Nýta betur núverandi innviði Með þessum aðgerðum er hægt að bæta upplifun iðkenda strax, á meðan unnið er að stærri framtíðarverkefnum. Samfélagslegt gildi Golfíþróttin hefur mikið samfélagslegt gildi. Hún stuðlar að heilsueflingu, eykur útivist og tengir fólk við náttúruna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Auk þess hefur hún veruleg áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf, enda sækja erlendir ferðamenn í auknum mæli í íslenska golfupplifun þar sem náttúra og íþrótt mætast á einstakan hátt. Uppbygging nýs golfvallar í Hafnarfirði er því ekki aðeins fjárfesting í íþróttaaðstöðu, heldur einnig í lífsgæðum íbúa og framtíðarþróun bæjarfélagsins. Framkvæmdir eru hugsaðar í áföngum með það að markmiði að þær geti hafist fljótlega og gengið hratt og vel fyrir sig. Lögð verður rík áhersla á gott samstarf við alla hagaðila til að tryggja farsæla niðurstöðu. Jafnframt felst í þessari staðsetningu spennandi tækifæri til frekara samstarfs við Golfsamband Íslands og íslenska ríkið um uppbyggingu þjóðarleikvangs fyrir golf á Íslandi. Slík uppbygging myndi skapa öflugan miðpunkt fyrir íþróttina, efla aðstöðu fyrir mótahald á alþjóðlegum mælikvarða og styrkja stöðu Íslands sem áhugaverðs áfangastaðar fyrir golf. Með þessari framtíðarsýn hefur Hafnarfjörður tækifæri til að byggja upp einstaka aðstöðu sem sameinar náttúru, íþróttir og samfélag. Verkefnið snýst ekki aðeins um golf, heldur um að skapa verðmæti fyrir komandi kynslóðir, efla lýðheilsu og nýta þau tækifæri sem felast í einstöku landslagi bæjarins. Höfundur skipar annað sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Golfvellir Mest lesið Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar