Biðst afsökunar á hnefasamlokunni Valur Páll Eiríksson skrifar 27. apríl 2026 14:18 Búast má við háum sektum eftir þennan leik Vísir/Samsett Esteban Andrada, markvörður Real Zaragoza á Spáni, hefur beðist afsökunar á glórulausri hegðun sinni í leik við Huesca í deildinni í gær.
Um er að ræða grannaslag milli erkifjenda sem einnig eru bæði að berjast fyrir lífi sínu í spænsku B-deildinni. Huesca leiddi leikinn 1-0 þegar upp úr sauð undir lok leiks. Andrada fékk að líta sitt annað gula spjald fyrir að hrinda Jorge Pulido, fyrirliða Huesca, og óð í kjölfarið í átt að Pulido og kýldi hann kaldan. Upp úr sauð í kjölfarið og fleiri rauð spjöld fóru á loft. Dani Tasende, leikmaður Zaragoza, og Dani Jiménez í Huesca, fengu báðir reisupassann auk Andrada. Goleiro Esteban Andrada, do Zaragoza, cometeu uma agressão absurda no dérbi com o Huesca. Tem de pegar um gancho sério. pic.twitter.com/dHEaCH5Ktp— Leonardo Bertozzi (@lbertozzi) April 26, 2026 Bæði Huesca og Zaragoza hafa fordæmt atvikið og hegðun leikmanna. Búast má við hörðum viðurlögum fyrir bæði leikmenn og sektir á félögin. Andrada birti þá afsökunarbeiðni á samfélagsmiðlum Zaragoza. „Ég sé mjög eftir þessu. Þetta sýnir félagið ekki í góðu ljósi. Ég við Jorge Pulido afsökunar þar sem ég missti algjörlega stjórn. Ég tek við öllum þeim viðurlögum sem ég á yfir höfði mér,“ segir Andrada meðal annars. Fjögur lið í tuttugu og tveggja liða deildinni falla í þriðju efstu deild á Spáni. Huesca er í efsta fallsætinu, því nítjánda, með 36 stig, tveimur frá öruggu sæti, eftir að hafa unnið leik gærdagsins 1-0. Zaragoza er með 35 stig í 21. sætinu, þremur frá öruggu sæti.
Spænski boltinn Tengdar fréttir Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Esteban Andrada, markvörður Real Zaragoza á Spáni, missti stjórn á skapi sínu í slag við erkifjendur liðsins í Huesca. Andrada kýldi leikmann erkifjendanna og upp úr sauð milli liðanna. 26. apríl 2026 20:27 Mest lesið Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Fótbolti Rooney tekur fyrir kjaftasögur Enski boltinn Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Enski boltinn „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Handbolti Lygilegt sigurmark HK í Vestmannaeyjum Handbolti Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Handbolti Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Handbolti Fury og Joshua mætast í fyrsta sinn í desember Sport Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Konaté dregur sig úr franska hópnum vegna meiðsla Klopp og Xavi sættust á stig Ísraeli fékk rautt fyrir að breyta hornfána í vopn og skjóta úr því Noregur - Danmörk 3-2 | Fyrsti sigurinn á Dönum í 26 ár Kósovó - Írland 1-0 | Heimir og félagar byrja á tapi í Kosovo Ókeypis að sjá vonarstjörnur Íslands og Frakklands Landsliðin flúðu haustlægðina Mætir Haaland eftir að hafa þjálfað hann 16 ára „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Sjá meira
Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Esteban Andrada, markvörður Real Zaragoza á Spáni, missti stjórn á skapi sínu í slag við erkifjendur liðsins í Huesca. Andrada kýldi leikmann erkifjendanna og upp úr sauð milli liðanna. 26. apríl 2026 20:27