Elskar Sjálfstæðisflokkurinn Hafnarfjörð með upplýsingaóreiðu? Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar 27. apríl 2026 15:30 Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fékk gervigreindina til þess að kokka upp súlurit með misvísandi upplýsingum um meðalaldur barna við innritun í leikskóla í nokkrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi framsetning heitir einu nafni upplýsingaóreiða og er óboðleg í opinberri umræðu um mikilvæg grundvallarmál eins og leikskólamál eru. Tilgangurinn helgar meðalið Gervigreind oddvitans var ætlað að bera saman meðalaldur við inngöngu í leikskóla en virðist af einhverjum ástæðum hafa notað lágmarksinntökualdur í sveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta, Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavog, og bar það svo saman við meðalaldur innritunar í Reykjavík og Reykjanesbæ þar sem Samfylkingin er í meirihluta. Súluritið sagði að meðalaldurinn væri 14 mánuðir í Hafnarfirði þegar meðalaldur við innritun er í raun 17,7 mánuðir. Svipaða sögu má segja um hin sveitarfélögin undir stjórn Sjálfstæðisflokksins í súluriti gervigreindar oddvitans. Hér virðist tilgangurinn einfaldlega helga meðalið. Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði segist elska Hafnarfjörð, og það er vafalaust rétt því öll elskum við bæinn okkar, en hann elskar greinilega ekki vönduð vinnubrögð. Vinnubrögð sem grafa undan trausti Leikskólamál eru alvörumál sem snerta hagsmuni barnafjölskyldna í Hafnarfirði og starfsfólks leikskóla. Stjórnmálamenn bera því ríka ábyrgð þegar rætt er um jafn veigamikið mál og hér er á ferðinni. Við verðum að nálgast málið af ábyrgð og tala með hreinskilnum hætti við foreldra, starfsfólk og íbúa vegna þess að þegar allt kemur til alls þá snýst þetta um hagsmuni og velferð barnanna. Það kann því ekki góðri lukku að stýra þegar flokkurinn sem hefur farið fyrir stjórn bæjarins síðustu tólf ár, Sjálfstæðisflokkurinn, skuli nýta sér upplýsingaóreiðu sem er kokkuð upp af gervigreind til þess að berja á Samfylkingunni. Það er dapur vitnisburður um 12 ára stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði ef hann hefur ekki upp á neitt annað að bjóða. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð og þau grafa undan trausti á stjórnmálunum og pólitískri umræðu. Við megum ekki við því og vinnubrögð sem byggja á óskhyggju gervigreindarinnar til þess að klekkja á pólitískum andstæðingum eiga ekki að sjást við stjórn bæjarins. Kominn tími á breytingar í Hafnarfirði Það eru sem betur fer bæjarstjórnarkosningar 16. maí nk. þar sem kjósendum gefst tækifæri til þess að velja annars konar vinnubrögð við stjórn bæjarins. Samfylkingin er tilbúin til þess að taka við stjórn bæjarins að loknum kosningum og kjósendur geta treyst því að vinnubrögð okkar í meirihluta munu einkennast af gagnsæi, hreinskilni og raunsæi gagnvart flóknum og mikilvægum málum en ekki innihaldslausum glansmyndum og hvað þá upplýsingaóreiðu sem gervigreindin kokkar upp fyrir okkur. Það er kominn tími á breytingar í Hafnarfirði! XS - Sterkari saman! Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og skipar 3. sætið á framboðslista flokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar