Lífið

Höguðu sér vel á árs­há­tíð Haga

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stemmingin var helvíti góð á árshátíð Haga á dögunum.
Stemmingin var helvíti góð á árshátíð Haga á dögunum. Steina Matt

Árshátíð Haga fór fram á dögunum þar sem um 1.300 starfsmenn og makar úr öllum tíu félögum samstæðunnar komu saman og skemmtu sér. Veislustjórarnir Auddi og Steindi héldu utan um dagskránna þar sem fjöldi tónlistarmanna steig á svið.

Árshátíðin er haldin fyrir starfsfólk allra félaga Haga annað hvert ár, þar má nefna starfsfólk frá skrifstofu Haga, Hagkaupum, Olís, Bónus, Aðföngum, Bönunum, Zöru, Stórkaup, Lemon og Eldum Rétt.

Meðal tónlistarmanna sem komu fram á árshátíðinni voru Herra hnetusmjör, Daníel Ágúst. Emmsjé Gauti og Klara Einars. Gestir fylltu dansgólfið og sungu með, en í hliðarsal var líflegt karókí þar sem Sandra Barilli stýrði stemningunni. Plötusnúðurinn Dóra Júlía lokaði svo kvöldinu og hélt uppi fjöri fram á síðustu mínútu.

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir frá kvöldinu sem Steina Matt tók:

Herra hnetusmjör glóandi grænn og glaður.Steina Matt

Auddi og Steindi skemmtu fólkinu.Steina Matt

Árshátíðargestir voru ánægðir með skemmtiatriðin.Steina Matt

Fagnaðarlæti!Steina Matt

Fólkið sveiflaði servíettum.Steina Matt

Stuðið var greinilega mikið.Steina Matt

Daníel Ágúst appelsínugulur og sætur.Steina Matt

Dóra Júlía hress og kát.Steina Matt

Sandra Barilli stýrði karíókí.Steina Matt

Þessi klappaði með.Steina Matt

Hnetan alltaf öflug.Steina Matt

Þrjár diskópíur.Steina Matt

Klara Einars glæsileg.Steina Matt

Daníel Ágúst sýndi fimi sína.Steina Matt

Emmsjé hoppaði og skoppaði.Steina Matt

Daníel Ágúst í fíling.Steina Matt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.