Viðskipti erlent

Fursta­dæmin yfir­gefa OPEC

Samúel Karl Ólason skrifar
Suhail Mohamed Al-Mazrouei, orkumálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, segir Sáda ekki hafa verið látna vita af ákvörðuninni fyrirfram.
Suhail Mohamed Al-Mazrouei, orkumálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, segir Sáda ekki hafa verið látna vita af ákvörðuninni fyrirfram. Getty/Maksim Konstantinov, SOPA Images

Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa hóp OPEC-ríkjanna svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds.

Talið er að brottför furstadæmanna, sem á að eiga sér stað strax um mánaðamótin, gæti dregið úr mætti OPEC og aukið á óreiðu á olíumörkuðum, samkvæmt frétt Wall Street Journal.

Reuters hefur eftir Suhail ​Mohamed al-Mazrouei, orkumálaráðherra furstadæmanna, að ákvörðunin hafi verið tekin eftir ítarlega skoðun á orkustefnum annarra ríkja á svæðinu. Hann sagði ráðamenn furstadæmanna ekki hafa tekið þessa ákvörðun í samráði við konungsfjölskyldu Sádi-Arabíu, en Sádar eru óformlegir leiðtogar OPEC.

Mazrouei sagði einnig að ólíklegt væri að ákvörðunin myndi hafa mikil áhrif á markaði, vegna lokunar Hormússunds.

OPEC-ríkin eru Alsír, Angóla, Austur-Kongó, Ekvador, Gabon, Írak, Íran, Katar, Kúveit, Líbía, Miðbaugs-Gínea, Nígería, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía og Venesúela. Furstadæmin munu einnig yfirgefa OPEC+ hópinn en hann inniheldur mörg önnur ríki þar sem olíu er dælt úr jörðu.

Þessi hópur var myndaður í Írak árið 1960 og af ráðamönnum í Íran, Írak, Kúveit, Sádi-Arabíu og Venesúela. Innan hópsins hafa ráðamenn OPEC-ríkjanna stillt saman strengi sína um hve mikla olíu á framleiða og þannig stýrt olíuverði.

Furstadæmin gengu til liðs við OPEC árið 1967.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lengi verið harðlega gagnrýninn á OPEC og sakað þessi ríki um að arðræna allan heiminn með því að halda olíuverði háu. Hann hefur einnig tengt stuðning Bandaríkjanna í varnarmálum við veru ríkja Mið-Austurlanda í OPEC en furstadæmin eru eitt helsta bandalagsríki Bandaríkjanna á svæðinu.

Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa tapað verulega á lokun Hormússunds og Íranir hafa gert fjölmargar árásir yfir sundið á undanförnum vikum.AP

Ráðamenn í furstadæmunum hafa verið mjög gagnrýnir á önnur ríki á svæðinu fyrir að aðstoða þau lítið við að verjast árásum frá Íran á undanförnum mánuðum.

Um fimmtungur allrar olíu heimsins hefur farið gegnum Hormússund en síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran, og byltingarvörður Íran lokaði sundinu, hefur dregið verulega úr því flæði. Mikið magn af jarðgasi og öðrum innviðum hefur einnig farið gegnum sundið.

Furstadæmin eru innan Hormússund og hafa ekki getað flutt út eins mikið af olíu og gasi vegna lokunar þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×