Börn á biðlista eftir að komast á biðlista Auður Gunnarsdóttir skrifar 29. apríl 2026 08:34 Liðveisla barna með fjölþættan vanda er ein af mikilvægustu stoðþjónustu sem sveitarfélög bera ábyrgð á. Fyrir þessi börn og fjölskyldur þeirra getur réttur stuðningur skipt sköpum. Liðveisla er ekki lúxus. Hún er grunnstoð í því að tryggja að börn fái tækifæri til að taka þátt í samfélaginu, mynda tengsl og byggja upp færni til framtíðar. Fyrir fjölskyldur er hún oft lykillinn að því að daglegt líf gangi upp. Biðlistar í þessum málaflokki eiga ekki að vera til. Þeir bitna alltaf harðast á þeim sem standa höllum fæti. Og þegar sveitarfélag sættir sig við biðlista í svona þjónustu er það í raun að sætta sig við ójöfnuð. Ný tegund biðlista í boði bæjarstjóra Það er þess vegna með öllu ótækt að sveitarfélag eins og Kópavogur, sem á tyllidögum gefur sig út fyrir að vera barnvænt sveitarfélag, skuli ekki bera meiri virðingu fyrir þessari mikilvægu þjónustu en raun ber vitni. Í tíð núverandi meirihluta í Kópavogi hefur nefnilega verið tekin upp ný tegund af biðlista fyrir börn sem eiga rétt á stoðþjónustu. Þegar þau loksins losna af hinum eiginlega biðlista og starfsmaður tilbúinn er foreldrum þeirra tjáð að nú taki við annarbiðlisti – biðlisti eftir fjármagni! Þetta er svo fullkomlega galin nálgun að það tekur engu tali. En sennilega er það þetta sem oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi á við þegar hún segist elska töflureikniforritið sitt. Biðlistar kosta líka peninga - foreldranna Nú væri auðvitað freistandi að segja að þetta sé allt spurning um forgangsröðun. En í tilfelli meirihlutans í Kópavogi er þetta fyrst og fremst spurning um virðingu. Eða öllu heldur skort á henni. Skortur á raunverulegum skilningi á aðstöðu þeirra sem bíða og bíða, án þess að hafa hugmynd um hvað er langt í land. Hvað er langt í einhverja mynd af eðlilegu lífi með barn sem fullorðnast á meðan það bíður eftir þjónustu sem það á rétt á. Þessu verðum við að breyta. Kópavogur á að vera sveitafélag sem stendur með börnum en ekki sveitarfélag sem setur börn sem eiga rétt á stoðþjónustu á biðlista sem tekur við af öðrum biðlista. Af því Excel skjalið segir það. Höfundur er amma og í 16. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Kópavogur Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar