Fangelsismál - hættum þessu rugli Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar 29. apríl 2026 14:00 Undirrituð sótti málþing samtakanna Rescaled í síðustu viku á vegum Afstöðu, réttindarfélags. Rescaled (rescaled.org) eru evrópsk samtök sem stofnuð voru fyrir nokkrum árum og hafa að markmiði að vinna að breyttum áherslum í fangelsismálum og réttarfari almennt, m.a. með því að leggja áherslu á smærri einingar (detention houses) í nærsamfélaginu þar sem unnið er að inngildingu og þátttöku í samfélaginu en nú eru um 50 slík hús víðsvegar um álfuna. Afstaða fær aðild að samtökunum á þessu ári. Málþingið var haldið í Tirana höfuðborg Albaníu og var yfirskrift þess: Sjálfbærni, inngilding og réttarfar, sameiginleg skuldbinding til breytinga í átt til mannúðar, þátttöku og sjálfbærni. Gegnumgangandi í málflutningi og umræðum var að rannsóknir um framfarir í málaflokknum styddu við hugmyndafræði Rescaled um minni einingar í nærsamfélaginu, þær séu umhverfisvænni og dragi úr ofbeldi og endurkomum sem víða eru allt að 50%. Talsvert var rætt um mismunandi aðstæður í heiminum, bæði hvað varðar aðstæður í fangelsum og samfélaginu almennt, að dómskerfið endurspegli viðkomandi samfélög. Þar sem einstaklingshyggja, þöggun, refsistefna og útskúfun er ráðandi er erfitt að breyta kerfinu í átt til samvinnu, mannvirðingar og þátttöku allra. Hverjir fara í fangelsi og hvernig viljum við að þeir komi út í samfélagið að afplánun lokinni ? Fátækt, félagsleg einangrun, áföll og jaðarsetning geta leitt til afbrota og dóma sem oftar en ekki eru harðari gagnvart fólki með þennan bakgrunn samkvæmt rannsóknum afbrotafræðinga. Þegar við tekur svo að vera tekinn úr umferð og færður langt í burtu frá samfélaginu, í burtu frá fjölskyldutengslum, í einangrun, þar sem jafnvel er lítið um virkni/vinnu eða nám, þegar lítið er í boði að afplánun lokinni nema að leita í fyrri félagsleg tengsl er ekki nema von að endurkomur séu tíðar. Ef við hikum þegar spurt er hvort fólk sé í betur í stakk búið til að aðlagast samfélaginu þegar afplánun lýkur þýðir það að breytinga sé þörf. Fangelsi hafa verið byggð fyrir utan mannlegt samfélag, stór, einangrandi, langt í burtu, jafnvel langt í burtu frá almenningssamgöngum og fjölskyldum. Tengsl við fjölskyldu og aðstandendur eru talin með mikilvægastu forvörn þegar kemur að endurkomum í fangelsi. Stór fangelsi langt í burtu eru börn síns tíma, úr samhengi við vistkerfi og manneskjur. Í stórum fangelsum er hætta á að mannlegi þátturinn glatist og að erfitt sé að virða þær áherslur sem m.a. Mandela-reglurnar um meðferð fanga kveða á um. Á hinn bóginn getur fangelsið verið sá staður sem fólk finnst það öruggast og tilheyra betur en úti í samfélaginu og það segir sína sögu. Það er erfitt að breyta viðhorfum og kerfum, en við getum það, það sýna dæmin um viðhorf til ýmissa minnihluta- og jaðarhópa, til þátttöku þeirra og sýnileika. En fyrir utan mannlega þáttinn eru stór fangelsi dýr og ósjálfbær og eru ekki að bæta öryggi íbúa þegar til lengri tíma er litið. Við þurfum að spyrja okkur hvernig réttlæti viljum við? Spurningin er ekki hvort fólk snúi aftur út í samfélagið, spurningin er í hvaða ástandi? Getur verið að fjarlægð auki vandann í stað þess að leysa hann? Í smærri einingum er meiri möguleiki á að veita eintaklingsmiðaðan stuðning og endurhæfingu, viðhalda og bæta félagsleg tengsl og aðstoða fólk við að aðlagast samfélaginu aftur. Aðkoma jafningja er mjög mikilvæg. Jafningjar með reynslu eru ómetanlegir þegar kemur að því að vinna með tengsl, virkni og fræðslu og minnka þannig fordóma og útskúfun. Samfélag er ekki velferðarsamfélag nema þar sé hugað að velferð ALLRA. Höfundur er geðhjúkrunarfræðingur og faglegur ráðgjafi hjá Afstöðu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun