Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 30. apríl 2026 07:29 Olíu- og flutningaskip liggja við ankeri í grennd við Hormús-sund og bíða þess að komast í gegn. AP Photo Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið hærra frá árinu 2022 eftir miklar hækkanir á mörkuðum í Asíu í morgun.
Verðið tók kipp upp á við eftir að fregnir bárust af því að bandarísk hernaðaryfirvöld hefðu kynnt mögulega hernaðaráætlun fyrir næstu daga gagnvart Íran fyrir Bandaríkjaforseta. Áætlunin er sögð gera ráð fyrir mörgum snörpum en öflugum árásum á Íran með það að markmiði að koma skriði á viðræðurnar á milli landanna sem hafa siglt í strand. Brent-olían svokallaða hækkaði um sjö prósent í morgun og fór í 126 dollara á tunnuna en svo dýr hefur olían ekki verið síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. Eldsneytisverð hefur raunar hækkað stöðugt alla vikuna eftir að viðræðurnar sigldu í strand enda er Hormússund í raun og veru lokað, en í gegnum það fer stór hluti olíuflutninga heims. Hér á landi verður virðisaukaskattur á eldsneyti lækkaður tímabundið og tekur breytingin gildi á morgun, 1. maí og verður í gildi út 31. ágúst næstkomandi. Lög þessa efnis voru samþykkt á Alþingi í gær og á þessu tímabili mun eldsneyti því bera ellefu prósensnta virðisaukaskatt en ekki 24 prósent eins og venjan er.
Bensín og olía Orkumál Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Vladimír Pútín Tengdar fréttir Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. 28. apríl 2026 13:24 Brent olían rauf 120 dollara múrinn Verð á tunnunni af Brent olíunni rauf 120 dollara múrinn í morgun. Hefur Brent olían því hækkað um nær 10% frá því í síðasta mánuði. 17. febrúar 2012 09:38 Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi. 5. júlí 2012 09:57 Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira
Furstadæmin yfirgefa OPEC Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds. 28. apríl 2026 13:24
Brent olían rauf 120 dollara múrinn Verð á tunnunni af Brent olíunni rauf 120 dollara múrinn í morgun. Hefur Brent olían því hækkað um nær 10% frá því í síðasta mánuði. 17. febrúar 2012 09:38
Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi. 5. júlí 2012 09:57