Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Aron Guðmundsson skrifar 30. apríl 2026 10:59 Þór Akureyri og KA mætast í fyrsta sinn í efstu deild karla í fótbolta síðan árið 2002 á laugardaginn næstkomandi. Vísir/Samsett Gríðarleg spenna ríkir á Akureyri fyrir nágrannaslag Þórs og KA í Bestu deild karla í fótbolta á laugardaginn, þeim fyrsta í efstu deild síðan árið 2002. Það seldist upp á örskotstundu á leikinn en bæta á við nokkur hundruð miðum í sölu.
Þór Akureyri er nýliði í Bestu deildinni á yfirstandandi tímabili og hefur farið vel af stað með sex stig eftir fjóra leiki á meðan að KA-menn hafa ekki komist á skrið og aðeins sótt eitt stig. Gengi liðanna þegar kemur að leik laugardagsins verður sett til hliðar. Stoltið og montrétturinn á Akureyri verður undir í þessum fyrsta nágrannaslag liðanna í efstu deild síðan árið 2002. „Það er alveg gríðarlegur áhugi og mikil spenna fyrir þessum leik.“ segir Sveinn Elías Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs Akureyri í samtali við Vísi. „Frá því að Þór tryggði sér sæti í Bestu deildinni síðasta haust hefur verið talið niður í þennan leik. Þetta var það fyrsta sem menn horfðu eftir þegar að leikjadagskrá deildarinnar var gefin út.“ Þórsarar unnu Lengjudeildina á síðasta tímabili og tryggðu sér beinan farmiða upp í efstu deildVísir/Ernir Fleiri miðar fara í sölu Eins og við var búist seldust miðarnir eins og heitar lummur þegar opnað var fyrir miðasölu í Hamri, félagsheimili Þórs í gær og raunin var sú sama í KA-heimilinu þar sem stuðningsmenn gestaliðsins á laugardaginn reyndu að verða sér út um miða. „Við hefðum geta verið með sjálfboðaliða að selja miða allan sólarhringinn. Það var komin röð út úr Hamri þegar að við vorum með miðasölu þar milli klukkan fjögur og sex í gær. Þetta var eiginlega ótrúlegt.“ Það seldist upp á leikinn á örskotstundu, rétt tæplega 1500 miðar seldir og eftirspurnin mun meiri en framboðið. Því ætla Þórsarar að gera bretta upp ermar og koma upp fleiri áhorfendastæðum. Standa vonir til að geta sett á milli tvö- til þrjúhundruð miða í sölu til viðbótar. „Við reiknum með því að geta sett fleiri miða í sölu svo allir komist að sem vilja. Við finnum vel fyrir því að það er gríðarleg eftirspurn. Við munum setja brettastæði fyrir aftan annað markið. Svo erum við að skipuleggja það hvar stuðningsmenn beggja liða koma að svæðinu. Það er risastórt öldungamót í blaki á sama tíma þessa helgi og rosalega mikið af fólki í bænum. Við þurfum að standa rosalega vel að þessu öllu.“ Flautað verður til leiks á VÍS-vellinum, heimavelli Þórsara, klukkan fjögur á Laugardaginn. Veðurspáin lítur vel út. Heiðskírt, sól og hægviðri. Einstakur viðburður Um lítið annað en þennan leik er rætt á Akureyri þessa dagana. „Handboltinn hitaði vel upp fyrir okkur í vetur. Báðir leikir KA og Þórs í Olís deildinni voru virkilega vel heppnaðir, rosalega fjölsóttir. Við vorum því undir það búnir að það yrði gríðarleg eftirspurn eftir miðum á þennan leik. Það er bara mikil spenna fyrir þessu. Ég held að þetta verði einstakur viðburður fyrir stuðningsmenn beggja liða. Ég hvet öll til þess að mæta í góðu skapi. Mæta til að njóta og styðja við bakið á sínu liði. Hafa gaman á þessum degi.“ Tólfti maðurinn Og eftir því hefur verið tekið hversu vel Þórsarar eru studdir í upphafi tímabils. Heima og að heiman. Þór spilaði síðast í efstu deild árið 2014. Stuðningsmenn Þórs hafa verið frábærir í upphafi tímabils. Hér eru þeir í fyrstu umferðinni í útileik á móti Val á Hlíðarenda.Vísir/Guðmundur Þórlaugarson „Ég held bara að við höfum verið rosalega þyrstir í að komast aftur upp í efstu deild. Flestir okkar harðkjarna stuðningsmenn sem eru að styðja við bakið á okkur núna og syngja söngvana okkar hafa aldrei séð Þór spila í efstu deild. Þeir eru bara algjörlega að njóta þess. Ég heyri það bara á þjálfarateymi liðsins og leikmönnum að þetta er tólfti maðurinn inn á vellinum fyrir okkur í þessu.
Besta deild karla Þór Akureyri KA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Sjá meira