Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Jakob Bjarnar skrifar 30. apríl 2026 11:16 Sigmundur Davíð hélt því fram að flytum sofandi að feygðarósi í innflytjendamálum en Kristrún hélt því fram á móti að aldrei hafi meira verið gert í málaflokknum en einmitt nú. vísir/vilhelm Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins beindi máli sínu til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og vildi vita hvort ríkisstjórnin væri ekkert að gera í innflytjendamálum þar sem við blasti hræðilegar afleiðingar og stjórnleysi. „
Þróunin er hröð til hins verra,“ sagði Sigmundur Davíð sem hélt því fram að Íslendingar ætluðu ekkert að læra af reynslu annarra þjóða, þótt vítin væru til að vita um þau til að geta varast þau. Við værum að gera öll sömu mistökin. Og þar sé ekki bara um hælisleitendakerfið að ræða. Almenningur vogi sér ekki lengur á staði sem það fór óttalaust á áður. Ætlar ríkisstjórnin ekkert að gera í málinu? Lýsingar Sigmundar Davíðs á ástandinu voru ófagrar. Hann sagði ofbeldisgengi vaða uppi og síðustu fréttir væru hrollvekjandi; að hópar erlendra manna tæli barnungar stúlkur upp í bíla og minnti það helst á það sem Bretland gekk í gegnum en þar stungu menn hausnum í sandinn og reyndu að sópa vandamálinu undir teppi. Sigmundur Davíð hélt því fram að Ísland stefndi hraðbyri í það ástand sem er í Svíþjóð og hann spurði hvort þetta kallaði ekki á viðbrögð. „Ætlar forsætisráðherra ekki að líta til flokkssystur sinnar í Danmörku? Þurfum við ekki að ná tökum á ástandinu?“ spurði Sigmundur Davíð. Kristrún vakti athygli Sigmundar Davíðs á því að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra væri í salnum og að hún hefði staðið í ströngu. „Það var verið að kynna öruggara Ísland fyrir ekki löngu,“ sagði Kristrún og hélt því fram að allir sem starfi í málaflokknum væru ánægðir með það. Fjölgað hafi verið í lögreglunni og auknu fjármagni beint þangað. Kristrún sagði að heilmikið hafi verið gert í málaflokknum en auðvitað hugnist engum að hlusta á þá sögu. Og það væri ekki svo að allir þeir sem hingað kæmu væru glæpamenn. Það breyti ekki því að ýmislegt hafi verið gert til að taka á skipulagðri brotastarfsemi; það lægi fyrir að dómsmálaráðherra og þessi ríkisstjórn væru vakin og sofin vegna þessara mála. Gerir ráð fyrir því að Miðflokkurinn verði á grænu Sigmundur Davíð var ekki ánægður með svörin og sagði að þau minntu meira á Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands en Metta Frederiksen í Danmörku. Það væri verið að spekúlera í hlutunum. Og Sigmundur Davíð frábað sér þann málatilbúnað að hann væri að halda því fram að allir sem hingað leiti séu glæpamenn, slíkur málflutningur sé einungis til þess fallið að drepa málum á dreif. Það lægi einfaldlega fyrir að hér á landi væri fjöldi manna sem aldrei hefðu átt að fá að koma hingað. „Er ekki tímabært að vakna og bregðast við því ástandi sem við blasti?“ spurði Sigmundur Davíð. Kristrún sagðist hafa rætt þetta margoft við Mette Frederiksen og hún áttaði sig fullkomlega á því sem dómsmálaráðherra væri að gera. „Ég veit að það er vinsælt að koma hingað upp og láta sem ekkert sé gert en svo er ekki, það er fjöldinn allur af úrræðum sem þegar er kominn inn í þingið og ég býst við að Miðflokkurinn verði á grænu þegar við erum að taka til í þessum málaflokki.“ Kristrún sagði að meira hefði verið gert í þessum málaflokki en nokkru sinni og vert væri að halda því til haga.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Miðflokkurinn Samfylkingin Innflytjendamál Lögreglan Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vissi af árangrinum „þrátt fyrir skrítin kort“ Erlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Fleiri fréttir Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Sjá meira