„Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. apríl 2026 13:16 Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. vísir/vilhelm Dómsmálaráðherra kynnti í morgun landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum. 25 aðgerðir voru boðaðar en þar á meðal er þynging refsingar fyrir vændiskaupendur með frumvarpi í haust. Gerendur verði nafngreindir og fangelsaðir.
Áætlun dómsmálaráðherra er í 25 liðum og er til þess gerð að koma ákvæðum Istanbúl-samningsins í framkvæmd sem Ísland undirritaði árið 2011 og staðfesti árið 2018. Áætlunin var kynnt undir yfirskriftinni réttur til öryggis. „Þetta er fyrsta landsáætlun um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Ég er mjög stolt sem dómsmálaráðherra að fá að kynna þetta verkefni. Við erum heimsmeistarar í jafnrétti og við höfum verið í mjög langan tíma. Engu að síður er það alltaf staðan er það alltaf staðan og svartur blettur á íslensku samfélagi að konur og stelpur verði fyrir ofbeldi einfaldlega vegna þess að þær eru konur,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra í samtali við Vísi. Fyrsta aðgerðin var breyting á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili sem var samþykkt á Alþingi í vikunni. Nú er heimilt að beita rafrænu eftirliti með ökklabandi. Næst á dagskrá er frumvarp um vændiskaup sem dómsmálaráðherra hyggst leggja fyrir þingið í haust. Ætlunin er að þyngja refsingu fyrir vændiskaup. Lágmarksrefsing yrði því fangelsi og gerendur ákærðir og nafngreindir við fyrsta brot. „Í dag lýkur fyrsta broti vændiskaupanda með sekt. Við erum að skoða það hvort það muni hafa meiri varnaðaráhrif að fara í það að ákæra strax fyrir fyrsta brot. Ísland er komið á kortið sem sölustaður vændis. Þetta er ekki eitthvað sem við viljum að Ísland sé þekkt fyrir. Við vitum það líka að þar sem vændi þrífst í miklu mæli, þar þrífst mansal. Þar sem vændi þrífst í miklu mæli, þar þrífst önnur skipulögð brotastarfsemi,“ segir hún og heldur áfram: „Það sem við þurfum að horfa á því við erum að ræða útlendingamál. Opnustu reglurnar, minnsta eftirlitið leiðir ekki til mestu mannúðarinnar. Það sjáum við svo sannarlega í þessum vændismálum. Hingað eru að koma stundum kornungar stelpur, kannski átján til tuttugu ára sumar hverjar. Það þarf ekki að hugsa það lengi hver staða þeirra er í landi fjarri öllu því sem þær þekkja.“ Hún bætir við að það sé þýðingarmikið að birta nöfn gerenda eins og fyrirhugað er. Það hafi áhrif að birta nöfn í sakamálum. „Það er auðvitað meginreglan að birta nöfn. Mér finnst sannarlega koma til greina að gera það í þessum málum og eiga þannig við eftirspurnina.“ Meðal annarra aðgerða er að kortleggja og fræða viðeigandi stofnanir um heiðurstengt ofbeldi, setja á bann við þvinguðum ófrjósemisaðgerðum í hegningarlögum og greining orsakaþátta kvennamorða og hugsanlegra kerfisgalla. „Við ætlum að skoða það hvernig við getum með forvörnum og með fræðslu, hvernig við getum látið ólíka hópa talað saman og með lagabreytingu náð raunverulegum árangri á þessu sviði líkt og í öðrum janfréttismálum. “ Hún tekur fram að um tímabært skref sé að ræða. „Við erum að byggja ofan á góðan grunn. Fyrst og fremst er ég að horfa á það hvers vegna það er svo algengt að konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi,“ segir hún en sérstaklega verður tekið utan um jaðarsettar konur í aðgerðunum.
Kynbundið ofbeldi Vændi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Sjá meira