Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2026 20:55 Jeremy Pargo var stigahæstur á vellinum með 21 stig. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Grindavík tók forystuna í einvíginu gegn Val í undanúrslitum Bónus deildar karla með 93-67 sigri í þriðja leik liðanna í kvöld. Grindvíkingar leiða einvígið, 2-1, og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í fjórða leik liðanna á mánudaginn. Eftir að hafa orðið deildarmeistarar hafa Grindvíkingar ekki sýnt sparihliðarnar í úrslitakeppninni, ekki fyrr en í kvöld. Frammistaðan var þeirra besta í úrslitakeppninni, liðsheildin var sterk og vörnin gríðarlega þétt með DeAndre Kane sem besta mann. Valur var án Franks Arons Booker og Lazars Nikolic og ekki bætti úr skák að þeirra helstu sóknarmenn fundu engan takt í kvöld. Grindvíkingar voru með frumkvæðið í fyrri hálfleik en Valsmenn voru aldrei langt undan. Grindavík tók tuttugu þriggja stiga skot í fyrri hálfleik og setti niður sjö á meðan Valur hitti aðeins úr þremur af sextán þriggja stiga skotum sínum. Vörn Grindavíkur var að mestu góð og Kane var með Keyshawn Woods í gjörgæslu. Hann skoraði aðeins fjögur stig í fyrri hálfleik og átta af tíu skotum hans geiguðu. Ólafur Ólafsson var í miklum ham, skoraði fjórtán stig og skoraði talsvert eftir sóknarfráköst. Kristófer Acox var öflugur hjá Val með níu stig, átta fráköst og sex stoðsendingar í fyrri hálfleik. Þá fengu gestirnir tíu stig frá sínum varamönnum sem voru vel þegin í ljósi fjarveru Franks og Nikolic. Grindavík var átta stigum yfir í hálfleik, 48-40. Sóknarleikur beggja liða gekk erfiðlega í 3. leikhluta. Grindvíkingar fóru illa með nokkur upplögð færi en varnarleikur þeirra var gríðarlega sterkur. Valsmenn komust ekkert áleiðis og skoruðu aðeins tólf stig í 3. leikhluta. Sóknarleikur Grindvíkinga var snöggtum skárri og skilaði fimmtán stigum. Þeir leiddu með fjórtán stigum fyrir lokaleikhlutann, 66-52. Valur byrjaði 4. leikhlutann af krafti og Igor Maric minnkaði muninn í átta stig, 68-60, með þristi. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, tók þá leikhlé. Eftir það skoraði Jeremy Pargo sex stig í röð og róaði taugar heimamanna. Kane negldi svo niður þristi og kom Grindvíkingum sautján stigum yfir, 77-60, þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Bilið breikkaði á lokamínútum leiksins og á endanum munaði 26 stigum á liðunum, 93-67. Grindvíkingar skelltu einfaldlega í lás í seinni hálfleik þar sem Valsmenn skoruðu aðeins 27 stig. Atvik leiksins Þristurinn sem Pargo setti niður þegar fimm og hálf mínúta var eftir og kom Grindavík í 74-60. Eftir smá áhlaup Vals kláraði Grindavík leikinn með góðum kafla eftir leikhléið sem Jóhann tók. Stjörnur og skúrkar Kane spilaði kæfandi vörn á Woods sem skoraði aðeins sex stig og hitti aðeins úr tveimur af fjórtán skotum sínum. Pargo varð betri eftir því sem á leikinn leið og endaði með 21 stig og sjö stoðsendingar. Jordan Semple skoraði sautján stig og tók níu fráköst og Ólafur gerði sextán stig og tók ellefu fráköst, þar af sex í sókn. Kane skoraði fjórtán stig og tók níu fráköst. Hjálmar Stefánsson skoraði fjórtán stig fyrir Val og Igor þrettán. Kristófer var bestur í liði gestanna með níu stig, fjórtán fráköst og átta stoðsendingar. Woods, Kári Jónsson og Callum Lawson voru allir kaldir og skoruðu aðeins samtals 21 stig í leiknum. Það er einfaldlega allt, alltof lítið fyrir svona öfluga leikmenn. Dómarar leiksins Dómgæslan í úrslitakeppninni hefur verið mikið til umræðu undanfarna daga og vikur en hún verður það ekki eftir þennan leik. Sigmundur Már Herbertsson og félagar komust vel frá sínu í kvöld. Stemmning og umgjörð HS Orku-höllin var troðfull og stemmningin góð, sérstaklega Grindavíkurmegin, skiljanlega. Bónus-deild karla UMF Grindavík Valur