Körfubolti

Wembanyama snéri aftur og átti stór­leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Victor Wembanyama fagnar í nótt.
Victor Wembanyama fagnar í nótt. vísir/getty

San Antonio Spurs er í góðum málum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og ekki síst þar sem liðið endurheimti Victor Wembanyama í nótt.

Wembanyama fékk heilahristing í leik tvö gegn Portland og missti þar af leiðandi af leik þrjú. Hann var búinn að jafna sig í nótt og skoraði 27 stig í öruggum sigri, 114-93. Spurs leiðir einvígið 3-1 og vantar einn sigur til þess að komast áfram.

Höfuðmeiðsli eru almennt tekin mjög alvarlega en Wembanyama finnst of langt gengið í þeim efnum.

„Ég ætla ekki að fara út í smáatriði og þið getið spurt mig betur út í þetta í lok tímabilsins. Það voru miklar tilfinningar í mér fyrir leikinn og ég hleypti þeim öllum út,“ sagði Wembanyama en reglur NBA kveða á um að leikmaður verði að hvíla í 48 tíma ef hann fær heilahristing.

LA Lakers getur líka lokað einvígi sínu gegn Houston í næsta leik en Houston náð loksins sigri og sá til þess að Lakers næði ekki að sópa þeim í frí.

Boston Celtics er sömuleiðis 3-1 yfir gegn Philadelphia 76ers en það er allt jafnt hjá Toronto og Cleveland, 2-2.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×