LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik LeBron James sagði á sínum tíma að hann drykki eitt vínglas á dag og þakkar það að hluta til langlífi sínu í íþróttinni. Í nótt fékk hann aftur á móti óvænta vínsmökkun í miðjum leik. Körfubolti 3.11.2026 11:32
Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Kvikmyndagerðarmaðurinn Spike Lee, sem jafnframt er mikill stuðningsmaður ríkjandi NBA meistara New York Knicks, vill ekki sjá að leikmenn liðsins heimsækji Donald Trump, Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið. Körfubolti 2.11.2026 23:03
Fyrstur síðan David Robinson var og hét Victor Wembanyama fór mikinn í 121-111 sigri San Antonio Spurs á Minnesota Timberwolves í nótt. Körfubolti 1.11.2026 11:02
Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Mikill hiti var í NBA-deildinni í nótt þegar Indiana Pacers tóku á móti Dallas Mavericks. Þar voru leikmenn Mavericks ósáttir við harkalegt brot á Cooper Flagg. Körfubolti 24. október 2026 11:30
Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við LeBron James byrjar vel hjá nýjum félögum í Philadelphia 76ers. Í nótt var annar leikurinn hans með nýja liðinu og unnu 76ers frábæran endurkomusigur gegn gamla félaginu hans James, Cleveland Cavaliers, og unnu leikinn 114-106. Körfubolti 23. október 2026 10:01
Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið New York Knicks náði að verða NBA-meistari í fyrsta skipti í 53 ár á síðasta tímabili og var því fagnað fyrr í vikunni þegar nýtt tímabil byrjaði. Þrátt fyrir það er dramatík innan herbúða Knicks þar sem starfsfólki finnst það vera svikið. Körfubolti 23. október 2026 07:30
Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu Donald Trump Bandaríkjaforseti sakaði körfuboltamanninn LeBron James um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu í þjóðsöngnum fyrir fyrsta leik Philadelphia 76ers á tímabilinu sem var gegn New York Knicks í New York á þriðjudag. Körfubolti 23. október 2026 06:32
Er skrefareglan dauð í NBA? Umræða vestanhafs um fjölda skrefa sem stjörnur deildarinnar komast upp með að taka áður en þeir skora körfu hefur orðið sífellt háværari. LaMelo Ball sýndi ýkt sýnidæmi í deildinni í nótt. Körfubolti 22. október 2026 09:00
Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það LeBron James spilaði sinn fyrsta leik fyrir Philadelphia 76ers í nótt og það var hundur í gamla manninum. Körfubolti 21. október 2026 12:46
Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Philadelphia 76ers unnu ríkjandi NBA-meistara New York Knicks 106-100 þegar NBA-deildin byrjaði í nótt. LeBron James var að spila sinn fyrsta leik í NBA-deildinni fyrir 76ers og náði hann góðri byrjun með liðinu. Körfubolti 21. október 2026 07:30
Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Ben Simmons, leikmaður Sacramento Kings í NBA-deildinni, sleit hásin á æfingu með liðinu um helgina. Hann hafði nýlega samið við liðið eftir að hafa misst af allri síðustu leiktíð sökum meiðsla. Körfubolti 20. október 2026 12:46
Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors, sást haltra af velli á æfingu sem var opin fyrir almenning. Þetta er óheppileg tímasetning þar sem fyrsti leikur tímabilsins fyrir liðið er í vikunni. Körfubolti 19. október 2026 08:00
Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Treyja sem Michael Jordan spilaði í á síðasta tímabili sínu með Chicago Bulls í úrslitum NBA deildarinnar er orðin verðmætasti safngripur körfuboltasögunnar. Körfubolti 13. október 2026 10:00
Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu NBA-leikmaðurinn Victor Wembanyama hefur notað óhefðbundnar aðferðir til þess að bæta sig í körfubolta. Í sumar æfði hann með frönsku rúgbí-liði og var tekið á móti honum þar með opnum örmum. Körfubolti 6. október 2026 23:15
Lebron talaði hreint út Lebron James segist ekki hafa yfirgefið fjölskyldu sína í Los Angeles til þess að falla snemma úr leik í úrslitakeppni NBA deildarinnar með nýja liði sínu Philadelphia 76ers. Hann ætlar sér annan meistaratitil á lokastigi ferilsins. Körfubolti 28. september 2026 23:03
Losa Leonard eftir refsinguna Los Angeles Clippers og Toronto Raptors eru að ganga frá skiptum Kawhi Leonard til kanadíska liðsins. Klára þurfti dómsmál innan NBA-deildarinnar áður en skiptin gátu gengið í gegn. Körfubolti 14. september 2026 22:01
Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Los Angeles Lakers ætlar að reisa styttu af Phil Jackson, fyrrverandi þjálfara liðsins, fyrir utan heimavöll sinn. Jackson gerði Lakers fimm sinnum að NBA meisturum. Hann er sá þjálfari í sögu NBA deildarinnar sem hefur unnið flesta meistaratitla. Körfubolti 8. september 2026 20:02
Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu NBA dæmdi í gær í máli Los Angeles Clippers vegna brota félagsins á reglum um launaþak vegna stjörnunnar Kawhi Leonard. Þungar refsingar liggja fyrir í málinu. Körfubolti 3. september 2026 08:32
„Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Treyja sem Michael Jordan klæddist í þriðja leik úrslitaeinvígis á einu af hans sögufrægustu tímabilum í NBA deildinni í körfubolta er að fara á uppboð og gæti orðið verðmætasta körfuboltatreyja sögunnar. Körfubolti 26. ágúst 2026 16:02
Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Fyrrverandi NBA leikmaðurinn Enes Kanter Freedom var rekinn út úr húsi á leik Indiana Fever og Chicago Sky í WNBA deildinni í nótt. Hann lenti í orðaskaki við Natöshu Cloud, leikmann Chicago. Körfubolti 24. ágúst 2026 10:30
„Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Þekktir einstaklingar úr körfuboltaheiminum komu saman með fjölskyldu Don Nelson í minningarathöfn í kirkju í Dallas í gær til að heiðra næstsigursælasta þjálfara í sögu NBA, sem lést á sunnudag, 86 ára að aldri. Körfubolti 15. ágúst 2026 09:02
„Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Russell Westbrook hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir átján keppnistímabil í NBA-deildinni í körfubolta. Körfubolti 13. ágúst 2026 22:30
Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers NBA-körfuboltafélagið Los Angeles Lakers gengur nú kaupum og sölum og í dag var það selt fyrir metfé í annað skiptið á rúmu ári. Körfubolti 12. ágúst 2026 22:02
Lakers selt fyrir metupphæð Bandarísku viðskiptajöfrarnir Josh Kushner og Bob Iger eru við það að festa kaup á NBA liðinu Los Angeles Lakers. Sá fyrrnefndi er bróðir tengdasonar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta og hefur verið í fréttum undanfarið tengt misheppnaðri áætlun Gianni Infantino, forseta FIFA um einkafjárfestingu í innviðum sambandsins. Körfubolti 12. ágúst 2026 15:00