Segir pabba hafa hlaupið á sig Sindri Sverrisson skrifar 30. apríl 2026 22:52 Lindsey Vonn er á hækjum í dag eftir slysið skelfilega á Vetrarólympíuleikunum. Samsett/Getty Lindsey Vonn er enn að jafna sig bæði líkamlega og andlega eftir slysið skelfilega á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í febrúar og ætlar að bíða með ákvarðanir um framtíðina.
Vonn fór yfir stöðuna í viðtölum við AP og morgunþátt CBS í dag en þessi 41 árs gamla, bandaríska skíðadrottning var svo hætt komin eftir slysið, í brunkeppni leikanna, að hætta var á því að hún missti annan fótinn. Hún keppti á leikunum þrátt fyrir að hafa slitið krossband í hné skömmu áður en þrátt fyrir þau meiðsli og slysið heldur hún því opnu að snúa aftur til keppni. Pabbi hennar, Alan Kildow, hafði látið hafa eftir sér að ef hann fengi einhverju ráðið þá myndi Vonn aldrei keppa aftur. „Pabbi minn hljóp á sig. Hann ætti að vera búinn að læra það að ef mér er sagt að ég geti ekki eitthvað, þá mun ég gera það,“ sagði Vonn hress í þætti CBS. „Ég vil halda áfram að skíða, sama hvort það verður í keppni eða ekki. Ég elska fjöllin og þetta hefur alltaf verið mín ástríða,“ bætti hún við. Vonn hafði verið hætt keppni í sex ár áður en hún tók keppnisskíðin fram að nýju og kom sér í slíkt keppnisform að hún var talin líkleg til að bæta við Ólympíuverðlaunin þrjú sem hún á í sínu safni. Hún var efst í heimsbikarnum í bruni fyrir slysið í febrúar og hafði ekki endað neðar en í 4. sæti í neinni af keppnum vetrarins. Það verður hins vegar að koma í ljós hvort að önnur svo ævintýraleg endurkoma er í spilunum. „Ég vil ekki taka neina ákvörðun of fljótt eða svo mikið sem velta því fyrir mér hvað mun verða. Kannski hætti ég. Kannski keppi ég aldrei aftur og það væri bara í fínasta lagi en ég er ekki í neinu ástandi til þess andlega að taka slíka ákvörðun núna,“ sagði Vonn.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira