„Erum með montréttinn á Akureyri“ Árni Gísli Magnússon skrifar 2. maí 2026 20:53 Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA. Vísir/Pawel Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gat vel við unað eftir sætan 1-0 sigur á Þór í dag í leik sem beðið var eftir með mikilli eftirvæntingu. „
Mér líður bara mjög vel. Ég var bara virkilega ánægður með að sjá viðbrögðin eftir síðasta leik þar sem baráttan var ekki nóg og hún var svo sannarlega til staðar í dag og bæði lið og það bara endalaust af brotum og lítill svona skemmtilegur fótbolti eins og við var að búast þannig mér fannst bara dómararnir standa sig mjög vel að reyna halda þessum leik gangandi þannig við erum gríðarlega ánægðir og æðislegt að sjá stuðninginn. Það er allt fullt af KA fólki hér á Þórsvellinum og fullt af Þórsurum og bara alvöru slagur, bæði inni á vellinum og utan.“ Hvernig er að standa hinu megin við völlinn sem þjálfari og horfa yfir fólksfjöldann og stemninguna á meðan leiknum stendur? „Það er bara æðislegt, við vitum að þetta gerist þegar bæði lið eru saman í efstu deild og maður sá það bara í handboltanum í vetur hvað það gerir fyrir bæinn. Það er bara æðislegt og við erum auðvitað bara ótrúlega ánægæðir að við náðum að sigra og erum með montréttinn á Akureyri í dag og bara æðislegt líka bara fyrir okkar fólk. Þú getur tapað fótboltaleikjum en eins og við gerðum í síðasta leik er það ekki eitthvað sem maður samþykkir, svona frammistöðu, þetta sýnir okkur að ef við leggjum okkur fram getum við unnið fótboltaleiki, við vitum að það eru gæði í liðinu okkar en grunnvinnan þarf alltaf að vera til staðar og það var í dag.“ Sigurinn var sá fyrsti á tímabilinu hjá KA sem gefur þeim að öllum líkindum sjálfstraust fyrir framhaldið. „Það róar aðeins, við vitum að ef það líður langur tími og þú vinnur ekki fótboltaleik að það er ekki gott fyrir sjálfstraustið og fleira. Þetta gefur trú og æðislegt að við höfum náð að sigra og halda hreinu því að Þórsarar fengu fullt af hornspyrnum og aukaspyrnum náðu svona að þrýsta aðeins á okkur en á sama tíma fáum við líka dauðafæri. Þegar leikurinn svona aðeins, tempóið datt út, fannst mér gæðin í okkar liði aðeins meiri á boltanum og við skapa aðeins meira í opnum leik.“ Hvernig var að horfa á Hallgrím Mar standa yfir boltanum á vítapunktinum undir lokin með allt undir? „Ég er búinn að horfa á þetta svo lengi, bæði sem leikmaður með honum og aðstoðarþjálfari og þjálfari þannig ég treysti honum fullkomlega til þess og hann kláraði þetta bara af fagmennsku. Svo er líka leiðinlegt að sjá greyið (Isaac) Atanga hérna brotna eftir smá stund og Rodri okkar meiðist, ég veit ekki hver staðan er á honum, þetta er náttúrulega alltaf ömurlegt en já bara vonandi nær hann sér sem fyrst, ekki fljótlega, ég sá hvernig löppin á honum var en vona innilega að hann komi sterkur til baka.“ KA mætir ÍBV á heimavelli eftir rúma viku og Hallgrímur segir að strákarnir megi njóta og fagna sigrinum í kvöld. „Já já þeir fá aðeins að fagna þessu, maður þarf aðeins að leyfa sér eftir svona leiki, en svo er bara fullur fókus. Eigum ÍBV held ég heima núna og það er bara klárt mál að við þurfum að mæta með alvöru hugarfar þar og ef okkkur tekst að vinna þann leik erum við komnir í ágætis mál.“
Besta deild karla KA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Sjá meira