„Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. maí 2026 22:35 Davis Geks setti nokkur stór skot niður í kvöld. Vísir/Pawel Davis Geks var gleðin uppmáluð þegar hann gekk í viðtal eftir sigur Tindastóls gegn Stjörnunni. Með sigrinum tókst Tindastóli að knýja fram oddaleik og Geks segir varnarleikinn hafa verið lykilinn.
Leiknum lauk með 97-103 sigri Tindastóls eftir harða baráttu. „Hver einasti leikmaður liðsins gaf allt í þetta. Við byrjuðum ekki vel, vorum í smá vandræðum en byrjuðum að finna taktinn betur í seinni hálfleik. Við náðum að snúa þessu okkur í vil, gerðum það virkilega vel. Á lokakaflanum fórum við vel með boltann og náðum að vinna,“ sagði Geks í viðtali við Andra Má Eggertsson eftir leik. Tindastóll byrjaði leikinn illa og var mest þrettán stigum undir í fyrri hálfleik. „Þetta var erfiður fyrri hálfleikur, Giannis var að setja góð skot en við fundum ekki flæðið í sókninni. Svona er þetta samt bara í íslensku deildinni, þú getur verið tíu stigum undir eða tíu stigum yfir og snúið því við á augabragði. Við þurfum samt klárlega að byrja næsta leik betur, sérstaklega varnarlega.“ Hvað breyttist í seinni hálfleik? „Við spiluðum miklu betri vörn. Við reyndum að minnka svæðisvörnina og fara meira maður á mann. Taka leikinn í okkar hendur.“ Sjálfur var Geks í miklu stuði en hann skoraði 24 stig í kvöld, þar af voru sex þristar. „Þetta er held ég einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu. Ég var í stuði í sókninni, fékk góðar sendingar frá liðsfélögunum og setti skotin niður.“
Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík-Grindavík | Íslandsmeistararnir fá toppliðið í heimsókn LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Sjá meira