Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Skrúbb 4. maí 2026 09:15 Skrúbb teymið fyrir utan í Sundabog, þar sem þau eru með lager og skrifstofu. Fyrirtækið Skrúbb hefur á stuttum tíma byggt upp sérhæfða þjónustu við gluggaþvott og hreinsun á klæðningum húsa. Samhliða því býður Skrúbb upp á þakrennuhreinsun auk viðgerða og skipta á þakrennum. „
Nú er stærsta törnin að hefjast hjá okkur, það er mest að gera frá maí og fram í ágúst. Við vinnum fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga og sinnum aðallega gluggahreinsun og hreinsun á klæðningum yfir sumartímann,“ segir Ágúst Ármann, stofnandi og eigandi fyrirtækisins. Nú er því rétti tíminn til að panta þjónustu. Þakrennuhreinsun, viðgerðir og skipti Þakrennuskipti fyrir íbúa í Bústaðarveg 51. Skrúbb hefur vaxið hratt og til að mæta auknum umsvifum keypti fyrirtækið körfubíl fyrir síðasta sumar og hefur nú bætt öðrum við. Með því getur Skrúbb sinnt stærri og flóknari verkefnum á hagkvæman og öruggan hátt. Körfubílarnir nýtast sérstaklega vel við gluggaþrif í fjölbýlishúsum og við vinnu við þakrennur en þar hefur fyrirtækið einnig byggt upp sérstöðu. „Við hreinsum þakrennur og sinnum einnig viðgerðum á þeim og tökum að okkur að skipta út. Við bættum þeirri þjónustu við þar sem eftirspurnin var mikil og ekki mörg fyrirtæki sem sérhæfðu sig í þessari þjónustu. Nú tökum við að okkur fjölbreytt verkefni,“ segir Ágúst en tveir starfsmenn fyrirtækisins sérhæfa sig þakrennum. „Við höfum einnig verið að setja upp snjó- og laufgildrur svo það safnist ekki eins í rennurnar.“ Síar steinefnin úr vatninu svo engir taumar myndast Þrif á klæðningu fyrir húsfélagið Dalbrekka 2-14. Ágúst segir að einfaldar og faglegar vinnuaðferðir skili bestu niðurstöðunni þegar kemur að gluggahreinsun. „Við ákveðnar aðstæður þarf að nota hreinsiefni á gluggana en yfirleitt notum við eingöngu vatn, kúst og sköfu, það skilar langbestum árangri. Hárin á burstanum ná öllum óhreinindum og einnig erum við með dælu sem síar steinefni úr vatninu og þá verða engir taumar eftir á glerinu. Með kústinum er hægt að hreinsa glugga á efri hæðum og skafa án þess að skilja eftir rákir og körfubílarnir gera okkur kleift að sinna hærri húsum,“ segir Ágúst. Byrjaði einn með kúst Saga Skrúbbs hófst í janúar 2023 þegar Ágúst ákvað að prófa sig áfram með gluggaþvott í hverfinu. Hann segir boltann hafa rúllað hratt af stað. „Ég byrjaði bara á því að banka upp á hjá nágrönnum í götunni minni Garðabænum. Ég var bara einn, á bílnum mínum og með einn kúst en þetta gekk strax vel og ég fann að þetta var það sem ég vildi gera,“ segir Ágúst. Frá þeim tíma hefur fyrirtækið vaxið hratt. Í dag starfa 10 til 12 manns hjá Skrúbb. Að sögn Ágústs hefur eitt mottó fylgt fyrirtækinu frá fyrsta degi. „Við skiljum ekki við kúnnann í ósátt. Það skiptir öllu máli að fólk sé ánægt og við viljum tryggja það.“ Viðskiptavinir geta sent inn fyrirspurn á heimasíðu fyrirtækisins eða hringt beint og óskað eftir tilboði þeim að kostnaðarlausu.
Hús og heimili Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira