„En það er ekkert að þessu barni“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 4. maí 2026 12:47 Vigdís M. Jónsdóttir skrifar grein á Vísi, „Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi“. Greinin er löng en þörf, ekki bara fyrir okkur einhverfu stúlkurnar og konurnar, heldur líka, og ekki síst, fyrir þá sem umgangast okkur í langan eða stuttan tíma. Fyrstu viðbrögð mín voru reiði, af hverju er hún að segja öllum frá þessu? koma upp um okkur, hvernig á ég að „maska“ núna ef allir vita þetta? Svo fór ég að gráta en var smá stund að skilja út af hverju, það var ekki reiði heldur þreyta því þetta er rosalega þreytandi og erfitt að reyna að falla í hópinn, vera ekki of undarlegur í háttum og svörum, helst falla svo vel inn í að sem fæstir taki eftir manni, það er best að vera skuggi. Ég hef ekki farið í greiningu, ég er 60 ára, fyrir rúmlega 10 árum var ömmustelpan mín send í greiningu vegna gruns um einhverfu. Ég var mjög á móti þessu, mér fannst að svona greiningar myndu jaðarsetja hana og ekki hjálpa. Svo kom greiningin, jú, Asperger og AD/HD. Ég varð orðlaus „en það er ekkert að þessu barni“ „Já, við ættum kannski að ræða það aðeins,“ sagði móðirin rólega, „kannski ert þú með Asperger líka“, ég var ekki sátt en þetta lét mig ekki í friði svo ég gerði eins og sannur Asperger myndi gera, fór og las allt sem ég fann um Asperger, AD/HD og einhverfu, og þarna stóð þetta á hverri síðunni eftir annarri, líf mitt í hnotskurn, stundum nákvæmar lýsingar. Margar minningar komu upp, eins og þegar ég var 4 ára stakk ég alltaf af þegar ég var sett á róló og gekk ein heim, ég var á Patreksfirði þá, mér fannst vandræðalegt eða óþægilegt þegar mamma faðmaði mig þegar ég var 9 ára á leið í sveitina, af hverju fötin þurfa að liggja rétt og allir miðar klipptir af, ég hélt að allir gerðu það, af hverju maturinn minn má ekki snerta á disknum, af hverju ég þarf að vita hvernig Reykjavíkurferðin á að vera frá því lagt er af stað og þar til við komum heim. Ég fór að ræða þetta við mínu nánustu, gekk í hóp á Facebook og það var ekki um að villast, ég er bullandi einhverf. En það var gott að komast að þeirri niðurstöðu, það er jákvætt að vita af hverju ég bregst svona við hlutum en aðrir ekki, vita að ég má vera öðruvísi en hinir og umfram allt að það er fullt af svona skemmtilegum rugludöllum eins og mér þarna úti. Það er farið að skína oftar í mig núna, ég þori að vera skrýtin og öðruvísi, í raun finnst mér það mjög gaman. Því vil ég þakka Vigdísi M. Jónsdóttur fyrir greinina. Það má ræða þetta, það þarf að ræða þetta. Höfundur er einhverf kona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar