Brosandi út að eyrum allan daginn eftir landsliðsvalið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 09:32 Jón Bjarni Ólafsson leikur sína fyrstu landsleiki síðar í þessum mánuði. vísir/anton Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, er einn þriggja nýliða í íslenska karlalandsliðinu í handbolta sem mætir Egyptalandi í tveimur vináttulandsleikjum síðar í þessum mánuði. Hann iðar í skinninu að spila fyrir íslenska landsliðið.
Snorri Steinn Guðjónsson gerði talsverðar breytingar á landsliðshópnum fyrir leikina gegn Egyptalandi og valdi meðal annars þrjá nýliða: Tryggva Þórisson, leikmann Elverum, og FH-ingana og nafnana Jón Þórarin Þorsteinsson og Jón Bjarna. „Þetta var ótrúleg tilfinning. Ég var brosandi út að eyrum allan daginn. Ég er mjög, hvað á ég að segja, stoltur af sjálfum mér og svo er rosalega mikill heiður að vera valinn,“ sagði Jón Bjarni í samtali við íþróttadeild. En hefur hann vonast eða beðið eftir að vera valinn í landsliðið? „Ég er búinn að vera að vonast eftir þessu en get ekki sagt hvort ég hafi verið að bíða eftir þessu. Ég veit það ekki. Þetta er held ég afurð þess að vera duglegur og standa sig vel,“ sagði Jón Bjarni. Hann hefur verið í hópi bestu línumanna Olís-deildarinnar undanfarin ár og varð Íslandsmeistari með FH 2024. Jón Bjarni, sem er þrítugur, hefur leikið með FH allan sinn feril ef frá er talin lánsdvöl hjá Fjölni. Jón Bjarni kveðst spenntur að sýna sig og sanna með landsliðinu. „Jú, auðvitað að fara á stóra sviðið og gera sitt besta. Ég get ekki beðið,“ sagði Jón Bjarni. Leikir Íslands og Egyptalands verða 13. og 15. maí. Þeir fara báðir fram ytra.
Landslið karla í handbolta Olís-deild karla FH Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Íslenski boltinn Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið Íslenski boltinn Læti í göngunum eftir leik Íslenski boltinn „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Íslenski boltinn „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn KA – Þór Ak. | Sex stiga fallbaráttuslagur nágrannanna Íslenski boltinn Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Fleiri fréttir ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“