DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Aron Guðmundsson skrifar 6. maí 2026 08:53 Bryson DeChambeau eftir sigur á US Open árið 2024 Vísir/Getty Bryson DeChambeau, einn fremsti kylfingur í heimi, segist munu ætla einbeita sér að YouTube rás sinni fram yfir endurkomu á PGA mótaröðina ef LIV mótaröðin leggst af.
Í síðustu viku greindi Ríkissjóður Sádi-Arabíu (PIF) frá þeirri ákvörðun sinni að hætta fjármagna LIV mótaröðina í golfi og um leið sagði Yasir Al-Rumayyan, formaður ríkissjóðsins og stofnandi LIV, skilið við mótaröðina. LIV mótaröðin var sett á laggirnar árið 2021 og fóru margir af helstu kylfingum heims yfir til LIV frá PGA. Nú þegar óvissa er uppi um framtíð LIV beinist spurningin að því hvað kylfingar mótaraðarinnar gera, hvort þeir reyni jafnvel að komast aftur inn á PGA mótaröðina. Notið gífurlegra vinsælda Spánverjinn Jon Rahm hefur náð samkomulagi við DP World Tour um að snúa aftur á þá mótaröð en Bryson DeChambeau, sem hefur slegið í gegn með YouTube rás sinni, hyggst ætla að stækka þann vettvang sinn fari svo að LIV verði að engu. „Frá mínu sjónarhorni væri ég til í stækka YouTube rás mína þrefalt eða jafnvel meira,“ lét DeChambeau hafa eftir sér í viðtali við ESPN en YouTube rás hans er með um 2.6 milljónir fylgjenda. „Ég myndi svo taka þátt á mótum þar sem menn myndu virkilega vilja hafa mig á meðal keppenda.“ Kylfingar sem myndu íhuga það að reyna komast aftur yfir á PGA mótaröðina gætu átt yfir höfði sér refsingar og sektir. DeChambeau segir það óheppilegt fyrir mótaröðina. „Svona í ljósi þess hvað ég gæti gert fyrir mótaröðina.“ YouTube rás DeChambeau snýr eingöngu að golfi. Þar hefur hann spilað með þekktum mönnum á borð við Donald Trump Bandaríkjaforseta, Steph Curry, Kevin Hart og Jon Daly og svo mætti lengi telja. Þá tekst hann á við áskoranir og hefur notið mikilla vinsælda til þessa. Núverandi samningur DeChambeau við LIV mótaröðina rennur sitt skeið eftir yfirstandandi tímabil og hafði hann búist við því að skrifa undir nýjan risasamning við mótaröðina áður en framtíð LIV tók á sig þennan stóra skell. PGA mótaröðin opnaði á endurkomu kylfinga frá LIV fyrr á þessu ári og var Brooks Koepka einn þeirra sem stökk á tækifærið en Bryson DeChambeau hafnaði því boði.
LIV-mótaröðin PGA-meistaramótið Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira