Verne og Nscale ljúka fyrsta áfanga uppbyggingar gervigreindarinnviða
Verne Global og tæknirisinn Nscale hafa lokið við fyrsta áfanga uppbyggingar gervigreindarinnviða á gagnaverssvæði Verne hér á landi. Félögin gerðu með sér samkomulag síðasta haust sem var sagt vera tugmilljarða virði.
Tengdar fréttir
Kaupa atNorth á háum verðmargfaldara líkt og þekkt er við sölu gagnavera
Miðað við áætlaðan rekstrarhagnað atNorth, sem byggir meðal annars á þegar tryggðum samningum við viðskiptavini, þá var fjögurra milljarða dala verðlagningin á félaginu í sölu til CPP og Equinix nokkuð í takti við þá háu verðmargfaldara sem þekkjast í viðskiptum með gagnaver sem geta stækkað frekar og mætt eftirspurn frá tæknifyrirtækjum á sviði gervigreindar.
Möguleiki á sæstreng til Bandaríkjanna 2027 sem myndi „gjörbreyta stöðunni“
Hagmunasamtök iðnaðarins eiga núna í samtali við stjórnvöld vegna hugmynda um lagningu sæstrengs til Bandaríkjanna, sem gæti þá opnað fyrir uppbyggingu gervigreindargagnavera hér á landi, og náist niðurstaða á allra næstu mánuðum væri raunhæft að slíkur strengur yrði tekin í notkun sumarið 2027. Það myndi „gjörbreyta stöðu“ Íslands í gervigreindarkapphlaupinu og skilað miklum útflutningstekjum.