Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2026 11:13 Myndin sýnir þegar verið var að flytja veika farþega frá MV Hondius undan ströndum Grænhöfðaeyja. AP/Misper Apawu Þrír farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius hafa verið fluttir á sjúkrahús í Hollandi, samkvæmt yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hantaveiran fór í dreifingu þar um borð á dögunum en þrír hafa látið lífið og að minnsta kosti fimm hafa veikst. Til stóð að sigla skipinu til Kanaríeyja en ekki hefur orðið að því enn, þar sem ráðamenn þar vilja ekki taka á móti skipinu.
Skipið er því enn við ankeri undan ströndum Grænhöfðaeyja og voru farþegarnir þrír fluttir þaðan. Tedros Adhanom Ghebreysesus, yfirmaður WHO, sagði við blaðamenn í morgun að stofnunin ynni náið með eigendum skemmtiferðaskipsins en skipið er skráð í Hollandi. Hann sagði að fylgst væri með heilsu farþega og áhafnarmeðlima, sem hafa að mestu setið fastir í káetum sínum um langt skeið. Skipinu var siglt af stað frá Argentínu þann 1. apríl og stóð til að sigla því til Suðurskautsins, Falklandseyja og annarra staða. Það breyttist þó eftir að fólk fór að veikjast. Farþegarnir voru fluttir í sjúkrabílum á flugvöll en þaðan var flogið af stað með þá til Hollands.AP/Misper Apawu Venjulega smitast fólk af hantaveiru eftir að hafa komist í snertingu við sýkt nagdýr, þvag þeirra eða saur, en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að smit hafi borist á milli manna á skipinu. Tveir af látnu voru hjón og þá virðast náin tengsl milli annarra sem hafa smitast. Forsvarsmenn heilbrigðisráðuneytis Spánar tilkynntu svo í gær að stjórnendur WHO og Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar hefðu beðið um að fá að sigla skipinu til Kanaríeyja og sú beiðni hefði verið samþykkt. Fjórtán Spánverjar eru um borð í skipinu. Sjá einnig: Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Fernando Clavijo, hæst setti embættismaður Kanaríeyja, hefur lýst því yfir að hann sé andvígur því að skipinu verði siglt þangað. Hann er pólitískur andstæðingur Pedros Sanchez, forsætisráðherra Spánar, en óljóst er hvort Clavijo hafi vald til að koma í veg fyrir að skipið fari til Kanaríeyja, samkvæmt frétt Reuters. AP fréttaveitan er með beina útsendingu frá Grænhöfðaeyjum, þar sem sjá má skipið.
Grænhöfðaeyjar Holland Spánn Kanaríeyjar Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira